It´s not a blog...

fimmtudagur, maí 28, 2009

uppdeit

Gleðilegt sumar. Ég er lítið búin að henda inn færslum en núna er best að henda í eina.

Nói er kominn á Hagaborg með Matthildi og er eins og lamb að vori. Hann er búinn að fara í nefkirtlatöku og líklega hefur þetta kombó virkað svona vel og er drengurinn búinn að vera frískur í á annan mánuð. Lungnabólgur því verið fjarlægar í mánuð og erum við búin að hafa það mjög skemmtilegt saman úti loksins. Ekki er verra að hann er að verða altalandi barnið og því enn skemmtilegri samræðurnar sem eiga sér stað þeirra á milli.
Matthildur er að verða unglingur, svo skýr og skemmtileg. Hún sprettur í takt við grasið úti og er að vaxa á hana sumarsporður sem er notaður í sundið. Sundtökin eru að verða ansi góð og hafmeyjan er farin að hoppa á bólakaf og er ekki hrædd við rennibrautirnar frekar en fyrri daginn. Hún er farin að telja á þremur tungumálum, og kom það algjörlega foreldrunum að óvörum enda komum við ekki nálægt því. Hún er búin að fara í allskyns skoðanir en það var komið að þessum 3-4 ára skoðunum vegna óþreyjunar við að komast í heiminn. Það er búið að ganga eins og í sögu. Hún er komin í sérsmíðaða skó því ökklarnir eru eilítið skakkir og innlegg bættust við. Þessir skór heita meðalaskór í daglegu tali hjá okkur og er hún búin að taka ástfóstri við þá, líklega vegna þæginda en álagið á ökklana var farið að hafa svolítil áhrif á líðan hennar og svefn.

Óli er búinn með skólann, ekki skil ég hvernig hann fór að þessu en ég held að hann sé óvenju duglegur, og auðvitað mjög vel gefinn þessi karl. Klapp fyrir því.
Ég klastraði upp smá sýningu sem er enn hangandi í gallerý sykri í kópavoginum en það er undanfari annarar stærri samsýningar sem verður vonandi í júlí en það koma betri upplýsingar um það síðar. Ykkur er velkomið að kíkja í Gallerý Sykur og sjá -út þessa viku.

Skólinn er búinn í bili, sumarið tekið við og ég verð heimavinnandi og málandi í sumar. Börnin fara í frí í júlí og Óli líka og planið er að fara eitthvað í ferðalag um landið því veskið býður ekki upp á flugferðir í þessu árferði. Það er samt fátt betra en Ísland að sumri og vonandi fáum við a njóta þess besta sem að hefur upp á að bjóða.
Hafið það gott kæra fólk, kannski ég verði duglegri við færslurnar á næstunni.

Nokkrar myndir, þarf að fara í Ólatölvu og finna þær sem áttu að fylgja þessari færslu.

þriðjudagur, mars 17, 2009

mjallhvít og apinn

fimmtudagur, mars 12, 2009

Stundum er ég svona

laugardagur, febrúar 14, 2009

nýjar og eldri













föstudagur, febrúar 13, 2009

Ein mistök, já aðeins ein mistök hef ég vísvitandi gert í barnauppeldi. Þau eru að sofa með börnin uppi í rúminu mínu..okkar. Ég heyrði mörg varnarorð frá reyndum húsmæðrum og kvenbesservisserum og blés á þau. Mér fannst og finnst þetta kósí (mattýska). Æði að fá tásur sem nudduðust við fæturna mína og frábært að sofa í faðmlögum við litla stubba sem kyssa mann blautum kossum á kinnar, snúa upp á hárið og segja "mamma, ég elskaðih".
Þegar klukkan er síðan slatta yfir miðnætti breytist þetta alhuggulega í ekki alveg jafn huggulegt. Tær í nefið, högg í andlitið, sofið í sömu stellingu frá 24 til 8 og sængurleysi. Í morgun vaknaði ég með hausinn á hvolfi ofan í holu. Ég svaf sitjandi í 3 tíma eina nóttina en það er svefnstelling sem flestar mömmur hafa upplifað með veik börn.
Ég hugsa stundum til dagana sem ég svaf ein í ameríska rúminu mínu og rumskaði ekki í heila nótt. Einnig hugsa ég oft um það hvað ég hafi eiginlega verið að gera með tímann minn áður en ég átti börn. Stundum hlusta ég á barnlaust fólk í skólanum dæsa yfir þreytu og tímaleysi. Þau búa enn hjá foreldrum og kunna fæst á þvottavél eða eldavél. Mig langar stundum til að slá það.
Ég myndi samt frekar þiggja allar heimsins vökunætur og slubbukossana, því það er betra. Það er ekkert í heiminum né annarstaðar sem gæti verið betra.
Stundum hugsa ég bara um þetta. Þurfti bara að skrifa þetta niður.


Á ferð og flugi í tryllitækinu

livingroom graffiti (Allt stofugólfið var graffað með grænum tússpenna...án vitundar móður)


Föndrhildur lasmína


Í sumarbústað að elda

Mesta fjör í heiminum

laugardagur, janúar 31, 2009

Á einhver þessa þætti og langar til að lána þá á hagamel í ca tvo daga? Call me!

mánudagur, janúar 12, 2009

Íbúð til leigu

3 herbergja íbúð til leigu á Hagamel frá og með næstu mánaðarmótum. Ef þið viljið fleiri upplýsingar hafið samband í síma 8200460 (minn sími) eða 6919614 (Óla sími)