Jæja, ég er búin að vera að spá í því að blogga um þetta í smá tíma en núna fannst mér kominn tími til. Þannig standa málin að við erum að flytja. Ég viðurkenni það fúslega að það verður án efa mjööög furðulegt að yfirgefa borgarmörkin en það eru nokkrar góðar ástæður fyrir því.
Ég ætla að nefna hér nokkrar.
1. Hér í huggulegu íbúðinni okkar erum við í 80 fermetrum. Við erum fjögur. Ef við flytjum þá komum við líklega til að verða í 167 fermetrum. Það er gooott kaffi.
2. Börnin verða í sitthvoru herberginu, leikherbergi og svefnherbergi. Okkur finnst það frábært og þarna erum við með stórann plús fyrir börnin.
3. Við fáum aukavinnuherbergi. Vinnuherbergi sem ég get nýtt þar sem ég þarf að stunda mitt nám með meira rými en eitt skrifborð. Það er frábært.
4.Við borgum minna og það er fínt á meðan efnahagsástandið er að fara til fjandans og við getum borgað niður skuldir og látið húsnæðið okkar borga af sér sjálft í útleigu. Það er gott.
5. Hérna erum við með einn fermeter, já einn fermeter af geymslurými. Það er ekki gott, í nýju íbúðinni erum við með stóra geymslu. Það er frábært.
6. Óli byrjar í nýrri vinnu sem er innan hans námssviðs. Það verður gott fyrir hann og enn betra fyrir fólkið sem fær hann í vinnu;)
7. Það er mun betra leiksvæði þarna fyrir börn og færri hættur en hérna í vesturbænum. Matthildur og Nói Hrafn geta farið út á róló og maður þarf ekki að díla við sömu áhyggjurnar og hér. Auðvitað er enginn staður áhyggjulaus en þarna eru þónokkrar hættur sem minnka.
8. Þetta er akkurat engin áhætta fyrir okkur að gera þetta. Ef þetta er fúlt og við hötum rokið, fáum myglusvepp, koxum á bensínkostnaði og ljótum fjölbýlishúsum, einangrumst og leggjumst í þunglyndi eins og svo margir góðir vinir okkar eru búnir að maaaarg benda okkur á, þá förum við bara heim aftur á Hagó.
Mig langar til að biðja alla vinina okkar um að finna jákvæði punktana og koma brosandi til okkar í sunnudagsheimsókn í sumar og vonandi næstu 3 ár.
Bkv,
Vala