mánudagur, október 27, 2008
Yfirferðin búin, gekk miklu betur en ég átti von á.Ég er enn svo tölvuchallenged að ég get ekki sett inn videoið enn. Vonandi fljótlega samt.
Enn merkilegra sem gerðist í dag er að Nói stóð upp og labbaði bara eins hann hefði ekki gert annað. Hann stóð upp og labbaði að borðinu, 5 skref einn tveir og bingó. Þetta var svo krúttlegt. Svo labbaði hann til systur sinnar sem beið með útréttan arminn til að knúsa hann. Stundum bráðnar hjartað í mér og verður að polli inní mér. Það er frábært.
sunnudagur, október 26, 2008
Ég er búin með mestu stresstörn ever í skólanum. Ég ætla að koma inn verkinu mínu hérna fljótlega sem var að taka mig á taugum. einnar mínútu verk tók endalausan tíma, en ég hætti við það sem ég var að gera og var komin á byrjunarreit 3 dögum í skil. Ég reyni að setja þetta inn á morgun.
Læt fylgja nokkrar myndir af krúttunum.



Læt fylgja nokkrar myndir af krúttunum.



Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)