föstudagur, mars 23, 2007

laugardagur, mars 17, 2007

Bloggleti

..er eitthvað sem hrjáir mig þessa dagana. Kannski er það gott, ekkert til að nöldra yfir og allt svona í nutral. Verð samt að deila þessari snilld með heiminum þökk sé breezer sjúklingnum:D (jebb er abbó og langar í einn kaldann núna með ananas)


laugardagur, mars 10, 2007

miðvikudagur, mars 07, 2007

Þema vikunnar heldur afram



Já ég fékk símtal frá huggulegri stúlkukind í dag. Hún sagði mér að mér væri boðið á forsýningu á Legi eftir Hugleik. Þemað heldur því áfram og ég þáði með þökkum á át næstum af henni hendina af gleði. Ég verð að gefa þessari snilld stórt lófaklapp. Ég fékk maskarann í pollum á mallann og sessunauturinn minn var í sömu sporum. Eg verð samt að mínusa þetta massíft vegna lélegrar loftræstingar 200°hiti og ekki opin búlla til að redda sér sódavatni. Pffff...
Beggers can´t be choosers svo ég kyngdi bara munnvatni á extra hraða og vonaðist til þess að ofþornun gerðist ekki á 90 mín.

Ég ætla samt ekki að mínusa þetta beint, verð bara að erfa þetta við leikhúsið, en ég skemmti mér konunglega. Gaman að fara í leikhús, allt of langt síðan síðast. Segir kannski of mikið að vera að leita af sjoppunni í fatahenginu..?

Takk Katz fyrir huggulega kvöldstund:*

Ég get víst ekki skrifað meira því það bíður mín 15 cm hörbútur á borðinu sem ég þarf að gera eitthvað við. Ekki reyna svo að gefa það í skyn að maður sé ekki að vinna fyrir BA gráðunni sinni:S

þriðjudagur, mars 06, 2007



Jæja þá er eins gott að útvarpa því á netið góða að við ætlum að sjá um það alfarið ein að fjölga íslensku þjóðinni. Þetta mission er víst hafið og við stefnum á september, nánar tiltekið.
Við vitum öll hvað Septembermánuður elur af sér frábært fólk:D

Yfir og út,

Fabulous four!