fimmtudagur, júní 28, 2007


Ég verð bara að deila því með þeim sem ekki vita. Ég fór í heimsókn til vinar míns fyrir um hálfu ári og sá þar fyndnustu þætti sem ég hef séð. Nighty night heita þeir og eru breskir. Svipaður húmor og í Little Britain en mun illkvittnislegri. Ég allavega veinaði þegar ég horfði á þetta og bið ykkur sem eruð jafn evil og bloggeigandinn ég að redda ykkur þessum þáttum.
http://www.bbc.co.uk/comedy/guide/articles/n/nightynight_999040106.shtml þetta á að vera linkurinn á þetta. Annars er ég líka búin að vera í little britain dvala og langt síðan ég horfði á þá síðast. Ég var svo heppin að ná í skottið á þættinum áðan og minna mig á að eyða meiri tíma í sjónvarpsgláp....eða þannig:S

Ég varð líka fyrir því óhappi áðan að lenda á Jay fituhaus Leno og sjá þar nokkur verstu moment spjallþáttana áðan. Þau voru fyrir ótrúlegri tilviljun öll stödd í þessum eina þætti. Þetta var eitthvað svona heimskuleg stunt hjá óþekktu fólki sem hefði nánast getað sagað af sér fótinn "on air" fyrir þessar eftirsóttu 15 sekundur af frægðinni. Þarna var einhver portúgalskur hobbiti í alltofstórum bol að gera eitthvað "reyniaðkveikjaekkiíbuxunummínum-stunt-á meðan ég reyni að setja flaming sykurpúða í skeið í munninum á mér" wtf? Ég sá bara þennann misheppnaða mann ná að kveikja í skónum sínum, næstum settinu hjá fituhausnum, brenna hendina á sér silent 3 stigabruna (passaði sig þó á því að kveinka sér ekki) og missa allt á gólfið tvisvar. Ég og gullmaðurinn sátum bæði veinandi og æjandi og reyndum að horfa á þetta með hálfklemmd augun af bjánagangi..
við komumst eiginlega ekki að því hvað átti að gerast þarna í endann eða út á hvað þetta gekk annað en að eymingjans maður gerði sig að fífli mð sykurpúða og eldspýtu.

Næsta á eftir kom rednekki með hart hár og gúmmíteygju langa sem vinur hans smellti á mallann á honum. Hann var samt held ég að reyna að koma frá sér þeirri gamansögu að hann hafi verið svo villtur eitt kvöldið að hann hafi bara smellt rakvél á hausinn og skrifað, "viltu giftast mér" og sýnt netkærustunni sinni á youtube. Rómansinn í háglansi. Þetta var semsagt önnur villtasta lífsreynslan hans á eftir gúmmíteygjustuntinu on air. Ég elska kanann.

Þriðja og toppurinn á tepartýinu hjá honum í þættinum (líklega gengið illa að fá seleb í þáttinn í kvöld) var svo ítalinn sem leit út eins og uppfinningamaðurinn í back to the future. bastarðurinn bróðir hans sem var dökkur en alveg eins.
Hann var svo hrikalega sterkur að hann braut kókoshnetur. Jay ákvað að sanna það fyrir áhorfendum að það væru engin brögð í tafli og maðurinn ætlaði að brjóta 20 hnetur á einu bretti...með berum höndum! úú þarna kemur eitthvað krassandi, hugsaði ég, en svo henti hann einni ofurhnetuni í gólfið og þá voru eftir 19 til að brjóta. Svo massað var þetta.
Litli ítalinn pústaði sig síðan upp með aðstoðarmanninum öskraði eitthvað óskiljanlegt á pizzeriamáli og hóf handa við að brjóta. hann braut eina ekki næstu ekki næstu og ekki næstu eina aðra og síðan var hann eins og hellisbúi á E pillu og barði allar aftur og aftur, nokkrar brotnuðu og þá var tíminn búinn. Meiriháttar talent.
Ahhh..you had to be there..

Vút

miðvikudagur, júní 13, 2007

Það líður langt á milli færlsna núna en það er bara þannig.
Það er fátt spennandi að gerast núna nema það að ÖLL fötin mín eru eins og það séu sniðin í xxs og því skondið að sjá mig á röltinu núna. Ef þið sjáið hormónabombu á vappi með gliðnaða sauma á rassi, rass að framan og uppúr þá endilega smellið á mig kveðju.

Ég var samt djörf og skellti mér í bíó með henni öskubusku vinkonu minni. Hún átti bágt með sig um tólf og var komin með nokkra feita marbletti af olnbogaskotum tíu mín. eftir að vagninn breyttist í graskerið.
Við ákváðum eftir mikinn valkvíða að fara á myndina Zodiac, myndin um fjöldamorðingjann. Það er alltaf eitthvað sem kveikir í mér við hrollvekjur og eitthvað svona ógeðslegt, þó þessi mynd sé svo langtfrá því að vera hryllari. Morð og eitthvað hryllilegt sem lætur mann missa úr svefn næstu viku er eitthvað sem ég borga mig hiklaust á. Þessi var hinsvegar voða ljúf miðað við margt annað. Mjöög skemmtilegur fyrri helmingur. Seinni....not so good. Held allavega að öskubuska hafi ekki verið sú eina hrjótandi í salnum. Af einhverjum ástæðum mæli ég samt með henni.

Eftir bíóferð og upplivelse síðustu daga þá er nýjasta uppgövun mín sú að að kaupa mér þvaglegg á Ebay. Ef þið sjáið einn slíkann endilega hendið til mín link á gripinn. Er komin með svo leið á því að pissa að það er ekki til lýsingarorð yfir það. Það er allavega 4 stigum yfir efstastigi.

Fjölskyldan áðurnefnda á baðinu er í lægð. Þau eru líklega enn syrgjandi undir baðinu en sem beeeetur fer þá eru þeir með afleysingar í sumar. Það er pólsk brún fjölskylda sem á líka jafnmarga fætur og the Silvanians, en eru með magnaðann hæfileika til að rúlla sér. Þeim fannst samt Ajaxið mitt ekki bragðgott og létu sig hverfa í bili aftur. Ég býst við því að vinir mínir undir baðinu séu að taka við nýjum umsóknum.

Bið að heilsa í bili.
Vala og minikepp