fimmtudagur, mars 08, 2012

Willy Wonka og allir hans vinir

Mamma er það satt sem vinur minn sagði í leikskólanum, að það sé til nammi sem heitir Nóakropp?
Ehh...já
Er það satt?! Eru það svona súkkulaðikúlur?

Ég vil ekki heita Nói lengur..
Hversvegna ekki?
Ég vil ekki heita eins og súkkulaði..
En elskan mín, það eru til Völu bollur og buff og ég er svo ánægð með að það sé til nammi tileinkað mér..við erum bara einstaklega heppin ég og þú.
Nei ég vil ekki heita Nói.
En þeir búa líka til Nóa konfekt og allskonar Nóa-nammi, það er svo viðeigandi því þú elskar nammi og ég hugsa alltaf til þín þegar ég borða Nóa nammi..sérstaklega Nóa kropp.
Hvaða nammi eiga þeir meira, lakkrís?
Já og ópal.
Þú mátt breyta nafninu þínu þegar þú ert orðin stór..
Vilt þú það mamma?
Nei mér finnst það fallegt
Nei mamma ég vil ekki breyta því mér finnst það bara fínt. Má ég fara í súkkulaðiverksmiðjuna? Ég skal ekki biðja um meira en eitt og þakka fyrir mig.