laugardagur, mars 29, 2008

oj bjakk

Ég var búin að gleyma því hvað það er ógeðslegt að fá gubbupest.

miðvikudagur, mars 26, 2008




Litli og stórinn minn

þriðjudagur, mars 25, 2008

Elsku kallinn, liggur þungt haldinn á spítala. Kom á mbl að þessi söngfugl hafi lent í bílslysi. Ég ásamt fleirum varð eitt spurningarmerki og ákvað að jútúba hann og datt niður á þetta gullmyndband. Vonandi hressist kallinn og gerir fleiri svona gullslagara og myndband í stíl.

þriðjudagur, mars 18, 2008

Mr. Chuck Jones

Ég er svo glöð yfir því hversu líkar við mæðgur erum. Núna er "Horton hears a Who" að byrja í bíói og Matthildur fær að eiga allar auglýsingarnar úr mogganum og safnar þeim. Hún kemur líka reglulega með tilkynninguna " þegar ég er búin með hlaupabólu þá ætla ég að fara að sjá Horton!"
Ég er algjörlega forfallinn Seuss aðdáandi og hlakka held ég meira til en Matthildur og svitna í lófunum af spenningi.
Það er eitthvað við þetta allt saman sem er svo magnað.
Ég hef svo oft hugsað um hvort að Jörðin sé bara ryk í skónum hjá einhverjum. Það er oft gott að vita að ég sé ekki ein um að hugsa þetta.
En annað sem hrífur mig er hann Chuck Jones. Þegar ég var lítil og horfði rosalega mikið á tomma og jenna þá fóru ákveðnar T&J myndir afskaplega í taugarnar á mér. Það var ákveðið tímabil sem þær myndir spunnu en það voru teikningar meistara Chuck Jones. Ég verð að segja að ég hálfskammast mín fyrir að hafa fundist hann leiðindateiknari sem barn en í dag er hann einn af mínum uppáhalds. Hann er líklega svona Maradonna í teiknimyndagerð. Svo strákarnir séu með;) Aka hönd Guðs. djók.
Nei allavega þá er hann líka svona mastermind sem kom mikið að teikningum Dr.Seuss tiknimyndanna (grinch) og teiknaði heil ósköpin af öðrum skemmtilegum teiknimyndu, Læt fylgja link með á gamlar teiknimyndir.




updeit fann bara leiðindarremix af þessum tomma og jenna þáttum sem mér fannst alveg off í den.
sjá hér:

sunnudagur, mars 16, 2008

Skóblæti


Ég er haldin skóblæti. Það er ekkert sem lætur mig kikna jafn mikið í hnjáliðunum og fallegir skór. Ég er svo veik.

Updeit- ég er hugfangin af 10 skóm, það eru 5 pör og verðmætið eru um og yfir 100.000. (Ísland bezt í heimi?)
Ég vildi óska þess að ég væri Imelda Marcos. Allavega skil ég hana vel. Til hamingju með sýknuna Melda mín, vonandi finnuru eitthvað fleira fallegt til að kaupa þér.

fimmtudagur, mars 13, 2008

Fór á þessa mynd í gær
Ég mæli með því að fleiri skelli sér á hana. Lofa því að það verða engin vonbrigði.

þriðjudagur, mars 11, 2008


Ég geeeeet ekki lært þetta. Leiðindapróf.

En aðrar fréttir eru þær að við flytjum í sumar. Nú fæ ég mér træbal trampstamp, blítsa hárið og kaupi mér mjaðmagallabuxur og drekk bríser á miðvikudögum. Ég er búin að fara í ljós svo þetta er ekki jafn tímafrekt. Keflavík here we come:S

En að allri kaldhæðni slepptri þá fáum við líklega íbúð á Keili og Óli er kominn með nýja vinnu, hann segir betur frá því öllu.
Ég hlakka svo til að fá aðstöðu, jafnvel aðstöðu til að fara loksins að teikna og mála og börnin fá leikpláss og geymsludótið okkar þarf ekki að eiga lengur heima í stofunni, kemst í stelpublak vonandi tvisvar í viku, komin með átaksvinkonu og vonandi dagmömmu. Sweet. Nú erum við fjölskylda og það þýðir ekki að gráta 101 og 107. Það bætist vonandi við nýr bíll í staðinn.