
Já ég fékk símtal frá huggulegri stúlkukind í dag. Hún sagði mér að mér væri boðið á forsýningu á Legi eftir Hugleik. Þemað heldur því áfram og ég þáði með þökkum á át næstum af henni hendina af gleði. Ég verð að gefa þessari snilld stórt lófaklapp. Ég fékk maskarann í pollum á mallann og sessunauturinn minn var í sömu sporum. Eg verð samt að mínusa þetta massíft vegna lélegrar loftræstingar 200°hiti og ekki opin búlla til að redda sér sódavatni. Pffff...
Beggers can´t be choosers svo ég kyngdi bara munnvatni á extra hraða og vonaðist til þess að ofþornun gerðist ekki á 90 mín.
Ég ætla samt ekki að mínusa þetta beint, verð bara að erfa þetta við leikhúsið, en ég skemmti mér konunglega. Gaman að fara í leikhús, allt of langt síðan síðast. Segir kannski of mikið að vera að leita af sjoppunni í fatahenginu..?
Takk Katz fyrir huggulega kvöldstund:*
Ég get víst ekki skrifað meira því það bíður mín 15 cm hörbútur á borðinu sem ég þarf að gera eitthvað við. Ekki reyna svo að gefa það í skyn að maður sé ekki að vinna fyrir BA gráðunni sinni:S
Engin ummæli:
Skrifa ummæli