Það líður langt á milli færlsna núna en það er bara þannig.
Það er fátt spennandi að gerast núna nema það að ÖLL fötin mín eru eins og það séu sniðin í xxs og því skondið að sjá mig á röltinu núna. Ef þið sjáið hormónabombu á vappi með gliðnaða sauma á rassi, rass að framan og uppúr þá endilega smellið á mig kveðju.
Ég var samt djörf og skellti mér í bíó með henni öskubusku vinkonu minni. Hún átti bágt með sig um tólf og var komin með nokkra feita marbletti af olnbogaskotum tíu mín. eftir að vagninn breyttist í graskerið.
Við ákváðum eftir mikinn valkvíða að fara á myndina Zodiac, myndin um fjöldamorðingjann. Það er alltaf eitthvað sem kveikir í mér við hrollvekjur og eitthvað svona ógeðslegt, þó þessi mynd sé svo langtfrá því að vera hryllari. Morð og eitthvað hryllilegt sem lætur mann missa úr svefn næstu viku er eitthvað sem ég borga mig hiklaust á. Þessi var hinsvegar voða ljúf miðað við margt annað. Mjöög skemmtilegur fyrri helmingur. Seinni....not so good. Held allavega að öskubuska hafi ekki verið sú eina hrjótandi í salnum. Af einhverjum ástæðum mæli ég samt með henni.
Eftir bíóferð og upplivelse síðustu daga þá er nýjasta uppgövun mín sú að að kaupa mér þvaglegg á Ebay. Ef þið sjáið einn slíkann endilega hendið til mín link á gripinn. Er komin með svo leið á því að pissa að það er ekki til lýsingarorð yfir það. Það er allavega 4 stigum yfir efstastigi.
Fjölskyldan áðurnefnda á baðinu er í lægð. Þau eru líklega enn syrgjandi undir baðinu en sem beeeetur fer þá eru þeir með afleysingar í sumar. Það er pólsk brún fjölskylda sem á líka jafnmarga fætur og the Silvanians, en eru með magnaðann hæfileika til að rúlla sér. Þeim fannst samt Ajaxið mitt ekki bragðgott og létu sig hverfa í bili aftur. Ég býst við því að vinir mínir undir baðinu séu að taka við nýjum umsóknum.
Bið að heilsa í bili.
Vala og minikepp
3 ummæli:
hey krúsl....sammála með Zodiac...góð en löng eins og ég kýs að kalla...hvenær fæ ég að hitta þig næst?
Bibban sem saknar völunnar
Já hugguleg, það er spurning...hvað sagðiru okt? sept? þú verður að hendast í flugvél, ég má ekkert fara:S
KOMA SVO!
-Vala
Zzzzzz Zzzzzzz, ha nei ég var ekkert sofnuð....
ZzzzZzzz
hehe, viltu koma í bíó?
Skrifa ummæli