miðvikudagur, febrúar 20, 2008

LOST og ellin

Merkilegt nokk þá eru þessir þættir enn í fullu fjöri. Þetta er eins og tannpína sem hverfur en kemur aftur og aftur. Ég er endalaust pirruð yfir þessu áhorfi en ég get bara ekki annað. Ekki að tannpína sé neitt fíkniefni fyrir mér en þessir þættir eru það samt. Ég get ekki látið þetta eiga sig fyrr en ég veit hvernig þetta fer allt saman. Það er svo merkilegt við þessa þætti að því meira sem maður horfir því minna veit maður. Ég veit semsagt mínus 4 seríur sinnum 2. Og þar hafið þið mína stærðfræði;) Núna er ég semsagt búin að horfa á 3 þætti í nýjustu seríunni..og jú það er margt að gerast og nei ég veit ekkert hvað er að gerast en...úff bara. Nú er ég komin aftur með áðurnefnda tannpínu því þetta hverfur ekkert heldur þarf ég að eyða tíma mínum í þetta núna vikulega.

En talandi um góða þætti (kannski ekki lost og kannski jú) þá eru dönsku þættirnir glæpurinn (forbrydelse ehh ehh forbrydelsen eða et? Danskan mín fer þverrandi)En þessir þættir eru stórkostlegir. Klár stúlka eins og ég er ekki að sjá í gegn um þetta eða vera nálægt því að vita hver morðinginn er. Við hjúin segjum reglulega "það er svooo pooottþétt þessi" og aldrei erum við að tala um sömu manneskjuna. Eins gott að við völdum okkur annað starf en glæparannsóknarteymi, því við myndum sökka sem eitt slíkt. Já og talandi um að vera orðin svo gömul að vera farin að horfa á glæpaþætti á rúv og í þokkabót danska (þetta var mælikvarðinn minn á elli þegar ég var lítil, frænka mín horfði á alla skandinavíska þætti á rúv og ég hugsaði með mér, þegar ég verð svona gömul þá verður sjónvarpssmekkurinn minn enn Parker lewis og Vistaskipti og þar fyrir utan ætla ég að vera ógeðslega smart mamma og vera bara í levi´s 501 og stuttermabolum innanundir levi´s boli) Onei, hér er ég talandi um dagskrána á rúv og samt með stöð 2. En klown er það fyndnasta sem ég hef séð. Elskann.
Jæja yfir og út. Vonandi fer næsti lost þáttur að koma.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ÉG veit hver er morðinginn....!!! en ég er líklega hundrað ára því ég horfi nánast bara á danska þætti...veti ekki hvort það sé vegna þess að ég bý í dk eða vegna þess að ég á danskan herra eða ég sé einfaldlega komin yfir 501 levis tímabilið og fer ekki lengur í stutterma yfir langerma...er samt alltaf allavega í tveim bolum...humm en ég ætla ekkert að skammast mín fyrir þetta....danir eru bara góðir í þessu....eins og ég hataði allt danskt fyrst...en kiss og ást á hagó...

Nafnlaus sagði...

og gleymdi alveg að minnast á LOST ég hætti þegar ég skildi ekki meir og flopp dauðans er Prisó...ég lét kjurt liggja eftir loka þátt annarar seríu þar sem það sauð upp úr hjá mér...fannst það alveg glató..en ég þarf að fara aðlæra kiss kiss

grojbalav sagði...

Ég býst við því að þú hefðir ekki horft á þessa dönsku þætti nema af því að þú býrð nú í danaveldi;) En þar græddiru. Það má ekki spilla fyrir mér glæpnum því ég elska að horfa eins og ég sagði;) Prisó horfi ég ekki á, þar dreg ég mörkin, nóg að láta draga mig á asnaeyrum í 3 ár með lost. Ég var einmitt að hugsa um það líka að ég er búin að vera að bíða eftir því að komast að plottinu síðan ég var ólétt af möttu. Núna er hún á þriðja ári og samt er ég enn að bíða. Jæja nóg um þaað. Knús og ást yfir til DK.

marta sagði...

ég hef því miður ekki náð að komast inní þessa dönsku þætti....
en mamma hins vegar er alveg óð, hún er svo spennt að þegar hún fór til Danm um daginn þá notaði hun tækifærði og horfði á síðasta þáttinn til að létta á spennunni!

næstu dönsku seríu ætla ég ekki að missa af. Mér fannst líka dönsku þættirnir um hjónin.... æji Eva og.. guð man ekkert hvað þeir hétu... voru amk skemmtilegir. ;)

Er að læra undir próf.. komin í steik.
Marta

marta sagði...

en já ég horfi ekki á lost.

a.tinstar sagði...

ég borða ekki ógeðslegt nammi sem börn búa til. þau pota í rassinn og þvo sér ekki um hendurnar...HAHAHAHAHAHAHAH

ps.ég hef aldrei komist í levi's 501, ég átti 505 og 555

grojbalav sagði...

marta ertu ekki að meina nikolai og julie eða það minnir mig að þau heiti. Það voru æðislegir þættir sem mig langar að sjá aftur. Missti af svo mörgum.
gangi þér vel með prófin elskan;)

Tinna, ég verð að viðurkenna að 555 voru mun fínni. n það var bara ekki alveg jafn töff ´92
klown eru fyndnustu þættir ever.
Vonandi er snjóbert búinn að lagast. Sendi bataknús til hans í huganum.

Nafnlaus sagði...

úffff 501, hversu LAME var maður!!?

Ég ELSKA líka Klovn, er einmitt að telja niður í næsta þátt, 3 korter í hann....

Kv,Ösp