þriðjudagur, maí 27, 2008

Elsku 107.

Tilkynni ykkur hér með að flutningar eru ekki lengur á döfinni. Við erum að reyna að fixa það sem er úr lagi þar sem margt kom upp á tíumín í flutninga. Við verðum áfram á Hagó, mörgum til mikillar ánægju býst ég við (lesist á vinsamlegann hátt;)) Það er margt samt sem angrar og leitum við leiða til að laga eitthvað af því. Það voru fleiri en við sem voru búnir að stóla á þessa flutninga og vonandi vonandi verður hægt að laga það. Okkur þykir það mjög miður.

Af öðru þá skil ég ekki hversvegna fólk á íslandi er svona tillitslaust. Fórum tvær huggulegar í strætó með barnavagnana okkar. (viðurkennist hér með að við nenntum ekki að labba) Drengurinn fattlausi sem sat í sætinu sem á að fara upp til að koma vögnunum fyrir sat sem fastast þrátt fyrir að það væru um 300 önnur sæti laus. Við komum okkur fyrir og tepptum gang í aftari hluta strætisvagnsins. Þó komu nokkrir leiðindafarþegar og ætluðust til að fá sæti þar sem þeir komust ekki. Stóðu og báðu okkur um að færa vagnana...enn og aftur þrátt fyrir önnur þjúhundruð sæti. Vonandi missið þið ekki svefn í nótt sem ekki fenguð sætin sem þið óskuðuð eftir. Feitu kerlingar og apakettir.

Ég vil koma á framfæri hrósi til tes og kaffis á laugaveginum fyrir framúrskarandi frappuchino með karamellu. Það er sálarmeðal og virkar mjög vel í frosti (næstum) og fárviðri í lokmaímánuði.

Hrós fær líka Casanova norðursins sem opnaði og hélt fyrir okkur hurð án þess að vera að fara inn. Takk fyrir að hjálpa okkur og strolling-unitinu út.

Snúllinn litli stendur og gerir "stór" með annari hendinni. Hann er alveg eins og brosandi frelsisstytta. Þvílíka arganskrútt.


Vút

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mjög leiðó að heyra...vonandi að þetta reddist...hef enga trú á öðru...get þá leikið miklu meira við þig þegar ég kem heim...en ást og sakn af hamingjustræti...skype fljótlega! bibbubjáninn

Nafnlaus sagði...

Ha ég skil ekki, afhverju er flutningar ekki á planinu lengur, leiðinlegt að heyra, mér var farið að lítast á þetta smá bara til að sjá þig með sprei tan og strípu. En það er nú líka huggulegt í Vestur bænum ;)

grojbalav sagði...

Stelpur stelpur, grátum ei. Ég er geim í grill og bjór, beylís og súkkulaði og rauðvín, heitapotta, hljómskálagarðinn mínus andarkúk, laugaveg og kaffihús í sumaryl. Allt er betra en að þurfa að akkera vagninn niður í rokinu og grafa upp kraftgallann í júní og skrölta á milli blokka. Reyjavík þarfnast okkar og við hennar. Ég verð að viðurkenna að ég er glöð:P