föstudagur, febrúar 13, 2009

Ein mistök, já aðeins ein mistök hef ég vísvitandi gert í barnauppeldi. Þau eru að sofa með börnin uppi í rúminu mínu..okkar. Ég heyrði mörg varnarorð frá reyndum húsmæðrum og kvenbesservisserum og blés á þau. Mér fannst og finnst þetta kósí (mattýska). Æði að fá tásur sem nudduðust við fæturna mína og frábært að sofa í faðmlögum við litla stubba sem kyssa mann blautum kossum á kinnar, snúa upp á hárið og segja "mamma, ég elskaðih".
Þegar klukkan er síðan slatta yfir miðnætti breytist þetta alhuggulega í ekki alveg jafn huggulegt. Tær í nefið, högg í andlitið, sofið í sömu stellingu frá 24 til 8 og sængurleysi. Í morgun vaknaði ég með hausinn á hvolfi ofan í holu. Ég svaf sitjandi í 3 tíma eina nóttina en það er svefnstelling sem flestar mömmur hafa upplifað með veik börn.
Ég hugsa stundum til dagana sem ég svaf ein í ameríska rúminu mínu og rumskaði ekki í heila nótt. Einnig hugsa ég oft um það hvað ég hafi eiginlega verið að gera með tímann minn áður en ég átti börn. Stundum hlusta ég á barnlaust fólk í skólanum dæsa yfir þreytu og tímaleysi. Þau búa enn hjá foreldrum og kunna fæst á þvottavél eða eldavél. Mig langar stundum til að slá það.
Ég myndi samt frekar þiggja allar heimsins vökunætur og slubbukossana, því það er betra. Það er ekkert í heiminum né annarstaðar sem gæti verið betra.
Stundum hugsa ég bara um þetta. Þurfti bara að skrifa þetta niður.


Á ferð og flugi í tryllitækinu

livingroom graffiti (Allt stofugólfið var graffað með grænum tússpenna...án vitundar móður)


Föndrhildur lasmína


Í sumarbústað að elda

Mesta fjör í heiminum

3 ummæli:

bibban sagði...

sætu sætu börnin þín...
barnlausa vinkonan sem dæsir oft en kann þó á þvottavél og eldavél!
luv u

Ásta sagði...

ég er alveg hjartanlega sammála thér! Vid gerdum líka thessi "mistøk", sem okkur finnst bara kósí, en samt best ef madur fær hálfa nóttina í fridi fyrst:)
Og ég get ordid alveg fjúkandi pirrud thegar ég heyri barnlaust fólk vorkenna sér vegna threytu, en vildi samt ekki skipta fyrir neitt í heiminum! Ég man samt alveg hvad ég gat ordid threytt ádur fyrr, ádur en ég vissi betur, og var búin ad upplifa hvad alvøru threyta var:) Thetta er eins og med fyrstu fædingar; madir heldur ad manni sé hrædilega illt thangad til thad verdur verra! hehe

Nína sagði...

Nei vá, er thad klikk ad finnast thau hafa staekkad sídan um jólin!

Knúsíknúsí frá Ciempozuelos.