Litli vinnuþrællinn minn niðri sagði upp störfum um helgina. Hann hafði samviskusamlega þvegið af okkur larfana síðan í upphafi sambúðar, og piparsveininum þar áður, en fékk nú nóg. Þarf því að kaupa mér nýjan en kemst að því að ég get keypt mér tryggingu í 5 ár svo verslunin dekki viðgerðir á gallagripnum ef hann reynist slíkur.
Ég hringdi í Sjóvá sem tilkynnir mér að svimandi háu tryggingagjöldin sem ég borga nú þegar dekki bara þjófnað á þvottavélinni, ekkert annað. Ég væri til í að sjá hversu margir hafi fengið endurgreiðslu úr tryggingunum þegar óforskammaðir þvottavélaræningjar hafi tæmt heilu þvottasameignirnar.
Ég get þá sofið rótt, þökk sé Sjóvá.
0 comments:
Sendu inn athugasemd