..í veikindum. Matthildur er las og ég andlega með henni. Ímynda mér að ég sé voða lasin og sef bara með henni;)
Ég er farin að gruna Teletubbies um heimsyfirráð. Þeir byrja á börnunum og hófust handa um 2000. Eftir nokkra tugi ára, þá verða þeir fosetar sinna heimsálfa, fjögurra sem þeir skiptu bróðurlega á milli sín, ásamt stubbabrauði og búðing. Þeir stíga klaufalega á þegna sína, flissa í hasskófinu sínu og fylgjast með okkur dýrunum á sjónvarpsskjánum sínum á mallanum. Ef við gerum einhvern óskunda þá höfum við verra af og í versta falli verðum við neydd til þess að tala við börnin sem talsettu íslenska efnið í 5 tíma. Það myndi drepa hvern sem er. Sé það fyrir mér að stúlkan sem segir "steppskórsteppskórsteppskórsteppskórsteppskórhefureinhverséðsteppskónamína?" sé með rauð augu horn og hala. Sama gildir um strákinn sem segir fýldri röddu "rigningrigningringningþaðergaman". Saddam held ég ætti bara að vera fegin með dauðarefsinguna sína. Þetta er ábyggilega verra.
Ef einhver er að hugsa hlýlega til okkar hér þá er alltaf velkomið að gefa barninu nýjann stubbadisk..því þessi er kominn í remix og segja þeir, stubb-ubb--ubbarnir-arnir.....segja-segja-segja -segja haaaaaa-aaaa-aaaaa-aaaaaaalló! Þetta er meira en mitt litla hjarta þolir. Matthildur situr samt eins og engill og heilinn hennar forritast í leiðinni. Alltaf er hægt að segja meija bubba...bubba...mamma, bubba!!!!!!
Mig auma.
En að öðru, ég legg til að þið lítið á manninn minn á blogginu sínu, myndarlegur er hann, en í fötunum mínum, not so much. Hann fær samt öll prik í kladdann sinn fyrir viðleitni og sjálfsfórnum fyrir þessi börn sem hann er að vinna fyrir. Þessi elska.
1 ummæli:
Sammála sammála sammála....telletubies er horbjóður og ekki börnum bjóðandi og hvað þá forledrum...heftir þau í talþroska hlýtur að vera...kennir þeim allavega ekki rétt....en vika smika...hvað er það!!!
Skrifa ummæli