
Jæja komið að smá bloggi.
Lítið að frétta, ég held áfram að furða mig á allskonar skandal í þessum heimi. Þá má efst tróna virkjanagleði skammsýnna pólitíkusa, Baugsmálsfarsinn, transfitugleði Íslendinga sem eru að springa úr fitu og óhollustu, Heilbrigðiskerfisins, þó helst BUGL vandamáls sem er til háborinnar skammar samanborði við önnur norðurlönd. og síðast en ekki síst svimandi hárra skólagjalda í skólanum mínum sem ég er að fatta að eru ekki komin í bankann:S
Ég veit ekki hvort ég eigi að fara að nefna þetta ofurþreytta Eurovision...er þetta ekki bara að verða komið gott. Hvernig væri að setja peninginn frekar í tónlistaþróunarmiðstöð fyrir unga upprennandi aðstöðulausa tónlistarmenn/konur? Hver nennir að horfa á þessar leiðindaklysjur eitt árið í viðbót reyna að hella nógu miklu í sig til þess eins að þrauka fram að íslenska sjóinu, sem eflaust inniheldur útbrennda poppara eða coverbakraddadrottningar, svo ekki minnist ég á ofurhresu fyrrverandi feitabolluna og drottninguna með hæsta enni í evrópu. Ég bara get þetta ekki.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli