mánudagur, apríl 16, 2007




Njarðvíkingar fóru heim súrir, mömmudrengir í KR tóku bikarinn. Það var gott. Ekki að mér hafi ekki verið sama þegar ég datt inn á þetta, með Óla minn æpandi í stofunni með magaherping. Skil ekki afhverju strákar fara að æpa yfir svona boltalátum.

Var að komast að því mér til ekki svo mikillar furðu að ég verð líklega búin að eignast tvö börn á meðan ég er engu nær í Lost. Segir það mér að ég sé lífseigur aðdáandi sem ætti alls ekki að gefast upp eða svona hint sem segir mér hinsvegar að give it up & get a life? Ég er alveg að fara að hallast að því síðarnefnda.

Er byrjuð í spennandi kúrs í vöruhönnun sem kætir mig mikið. Gott að enda þessa guðsvoluðu önn á einhverju svona skemmtilegu. Ég er líka haldin krónískri bloggþurrð. Gæti samt endalaust dælt inn soralinkum á þetta blogg sem kæta mig mikið eins og td þessi www.b2.is/?sida=tengill&id=231841 sem ég bara get ekki hætt að hlæja að.
Það mætti kalla þetta hormónasveiflur þegar ég er farin að fá kast á netinu og hlæja eins og api á stofugólfinu og byrja síðan að grenja mínútu síðar yfir tryggingarauglýsingu. Þetta gengur yfir. Það má alveg hughreysta gullmanninn einstökusinnum og minna hann á að þetta sé tímabil, ekki permanent crazyness.
Svo verður þessi líka að fylgja,www.b2.is/?sida=tengill&id=231858 , ætla að fá mér svona á morgun, set afraksturinn á barnaland.

3 ummæli:

Óli sagði...

Þú æptir líka fullt. Djöfull er ég ánægður með þig kona.

Nafnlaus sagði...

Neits ég æpti ekki neitt, ef ég hefði gert það þá hefðiru ekki einusinni heyrt það fyrir látunum í þér;)

Nafnlaus sagði...

Hvar er hvar er hvar er hvar er bloggið mitt hvar er bloggið mitt hvar er bloggið mitt hvar er hvar er hvar er hvar er hvar bloggið mitt sem þu lofaðir la la la la al all la la la la la