Ég held að það sé farið að líða of langt á milli skrifa, ég gleymdi leyniorðinu og komst ekki inn. Það segir allt sem segja þarf.
Ég hef verið skömmuð fyrir að vera löt við að skrifa en ég verð að segja að það er skárra að skrifa lítið en fullt af hundleiðinlegum færslum af banka og bónusferðum, veikinda og prófasögur. Læt alla hina bara um það.
Það er bara svo lítið að frétta.
síðan síðast er ég..
Búin að nýta kosningarrétt minn og kjósa rétt
Búin að segja of mikið við fólk sem kýs ekki rétt, verð að fara að hætta þessum stælum
Búin að fara í bíó, það gerist enn þó það sé sjaldan
Búin að hoppa af gleði yfir því að frumburðurinn sé farinn að tilkynna hægðarlos
Búin að fá flestar einkunnir úr skólanum, sýnist allt stefna í að fyrsta Ba-árinu mínu sé lokið, þó eru tvö eftir.
Búin að hanga of mikið á barnalandi..á maður að segja frá þessu á blogginu sínu
Búin að velta fyrir mér barneignum þroskaheftra of mikið
Langa til útlanda..sem er reyndar ekkert nýtt
Saknað vina minna.
Farið í bíltúr á fallegasta bíl í heimi
Fagnað sumri
Skammast mín fyrir tónlistarsmekk minn í fyrsta skipti á ævinni
Enduruppgötvað skemmtilegar hljómsveitir sem fengu að víkja of lengi í bílnum fyrir léttstöðinni, (stöð fellamamma i crocks og kvennahlaupsbolum) Fæ aldrei nóg af þeim eða því að tala um þær.
Dansað á stofugólfinu, of langt síðan síðast, varð móð
Þakkað fyrir að nágranninn fór ekki mínutu fyrr út með ruslið og næstum séð hamaganginn í stofunni
Séð mér til mikilla hughræringa myndir af mér á netinu síðan í barnaskóla (Minnti að ég hafi verið frekar smart..bömmer)
Hlegið af Huldu vinkonu fyrir að hafa verið hallærislegri en ég og þakkað fyrir það þegar ég sá mínar myndir. Hún toppar allt.
Glaðst yfir fyndnu fjölskyldunni minni.
Fengið að vita kynið á bebetwo og þagað yfir því.
Og að lokum fengið brjóstaþoku á svo háu stigi að ég gleymi öllu og þar á meðal hinu sem ég er búin að vera að gera og hvar ég setti símann og kortið...sorry óli.
3 ummæli:
Vel gert vel gert, nú veit ég sirka hvað er að gerast, góð samantekt. HVAÐ ER KYNIÐ????
Þar sem ég er hinum megin á hnettinum finnst mér alveg að ég ætti að fá að vita, hverjum á ég að segja hér. Sakna þín og fjölskyldunnar þinnar á melnum.
Kossar og knús Katrín
Haltu góðu starfi áfram
jei jei...blogg frá völunni....ég hef líka saknað vina minna!!! bibban í dk
Takk Katrín mín, þurfti að kreista þetta upp úr mér bara til að svala bloggþorsta þínum.
Þú ert ekkert með sérstaklega feitt tromp í hendinni þó þú sért í ástralíu. Færð ekkert að vita nema þú getir vippað "fötluðrúmliggjandisímalauslesbíasemáengavini" trompinu þínu, þá fengiru kannski að vita. En því miður. Þú ert fátt af þessu svo ég viti til. Kannski hálf símalaust þarna hinumegin en það er ekki nóg.
Já Bibba mín, ég blogga sjaldan en það kemur fyrir. Ekki fara of langt;)
Skrifa ummæli