miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Ég er farin að skammast mín fyrir að vera ekki nógu dugleg við að rækta samband við vini mína. Ég skelli skuldinni á vaxandi belg og skapsveiflur og inniveru sem belgnum fylgir.
Það er samt svo gaman að muna eftir skemmtilegum hlutum og muna að maður hefur alveg líka verið skemmtilegur. Ekki alltaf tikkandi hormónabomba sem bilast yfir því að gólfið sé ekki nógu vel skúrað;S

Ég fékk skemmtilega email sendingu um daginn. Það voru gamlar myndir sem ég vissi ekki hvort ég hefði viljað að hefðu týnst for good eða komist í mínar hendur sem þær gerðu. Verst að þær eru í mörgum höndum. Ég held að það sé alveg bókað mál að ég gæti aldrei orðið forseti. Ef maður ætlar að vera forseti þarftu að vera ansi flekklaus og þá má enginn eiga ósiðsamlegar myndir af þér. Ég á því miður of margar og ég held að margir aðrir eigi of margar.
Þessi var á meðal þeirra.



Ég verð semsagt aldrei forseti..

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú fengir mitt akvæði á nóni hvort sem þú værir með nærur á hausnum eða ekki....X-Vala í forseta...ástar sakn frá bibbz

Nafnlaus sagði...

Hver á brókina? Forsetatitill þinn gæti byggst á þeim upplýsingum. Ég á líka myndir af þér í brók á óvenjulegum stað er eh sem þú vilt koma á framfæri? Er einhver fetish í gangi eða......
Gólfin mín eru mjög skítug en mér er sama því ég er að dramast yfir kommum og orðafari. Klukkan er sko 12 á miðnætti á laugardagskvöldi og ég er að taka heimapróf, ég lifi svo á brúninni og ég er ekki með neitt í mínum maga nema makadamíu og cashew hnetur, þurrkað paw paw, ananas og mangó.
Hlakka til að sjá stóru fjölskylduna þína í Desember. Við verðum að skella okkur niður á stöð og fá okkur pylsu með öllu, extra remúlaði er með óslökkvandi löngun (craving samkvæmt orðabók.is) í pylsur með öllu.
Saknaðar kossar og knús
Katrín sem er orðin sturluð og endar á þjóðarbókhlöðunni með hinum sturluðu mönnunum sem lásu yfir sig.

Nafnlaus sagði...

Til Hamingju með dótturina, ég man ekki nýja leyniorðið á síðu afmælisbarnsins, ég held þú sért búin að segja mér það 3svar en ég gleymi því alltaf strax.
Ég missi víst af öðru afmæli hennar, og líklega því 3ja en vonandi næ ég því fjórða. Ef ekki þá mæti ég í ferminguna.
Kossar og knús
Katrín