fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Jæja huggulegheitin.
Ég er opinberlega í hreiðurgerð. Mér var sagt að þetta gæti gerst en ég hef aldrei trúað því. Var viss um að ef það væri hægt að vera í hreiðurgerð á msn þá myndi ég fá köllun ...annars ekki.
Ég verð að státa mig af því að vera húsmóðir í dag. Búin að þrífa ruslaskápinn (mamma sagði alltaf að þar gætirðu séð skítastandard heimilihaldarans) og er ég hæst ánægð með árangurinn. Ég er voða glöð yfir því samt að enginn sér mig á eldhúsgólfinu með plömmer, perrasvita stunur og tilbehör. Einu vitnin, me and bebe..

Svo var það ísskápurinn, veggirnir, skápahurðirnar og þá fattaði ég þetta allt saman, þetta var ekki mér að kenna og ég var ekki sú sem var að gera þetta heldur er hýsillinn að stjórna mér. Mikið er ég glöð að ég er ekki við stjórn lengur og enn glaðari yfir því að það eru ekki til fleiri Grey´s anatomy þættir. Þetta var að gleypa mig. Ég náði að horfa á síðasta þáttinn í gær (mútaði frumburðinum með heyrnatólum, stubbum og sveskjum) ég hef sjaldan bólgnað jafn mikið í framan. Ég er farin að lifa mig svo inn í þetta að ég var að verða veruleikafirrt. Valgerður læknanemi. Ég og George og izzy bestu vinir. Ég og Izzy saman með tannhvítunargóm að baka muffins á milli vakta. Gott að 4 serían er ekki komin.



Það var samt einn þáttur sem ég varð alveg lens yfir. Það var unglings stelpa sem var eins og vinkill í laginu. Hún var með sama sjúkdóm og ég er með, hryggskekkju sem veldur því að maður endar eins og samlokuskilti í laginu ef ekkert er gert.
Ég var svo heppin að vera Íslendingur og þar af leiðandi með frábært sjúkratryggingarbatterí á bakvið mig. Ég fékk skrúfur og nagla í bakið, missti rifbein og fékk stórt ör í skrappbókina fyrir.
Þetta tókst hjá mér en því miður er þetta ekki alltaf svona einfalt. Í þættinum mátti sjá þessa stúlku hálf skríða um því hún var ekki jafn heppin og ég. Ég hef einhvernvegin sjaldan leitt huganum að því hvernig hefði farið ef ég hefði ekki verið send í þessa aðgerð. Það var algjör tilviljun þannig séð því ég var búin að ganga á milli lækna sem sögðu mér annars vegar að anda í bréfpoka því ég væri bara ruglaður unglingur að feikaða eða að ég ætti bara að vera dugleg að synda. Sá sami læknir hafði látið mig vera í stoðbelti úr harðplasti 23 tíma á sólarhring og tvo hálftíma laus. Það var ekki huggulegt og enn síður þegar hann yppti öxlum og sagði að þetta hafði líklega ekki gert neitt gagn. Hefði líklega frekar viljað láta ljúga að mér og halda að þetta hafi þjónað tilgangi þennann 8 og 9 bekk sem ég þurfti að þrauka þetta. Hann sagði bara sorry ekkert meira fyrir þig og okkur að gera.

...Good memories:S

Sem betur fer lét ég ekki segjast og fór og fékk annað álit. Þá kom þetta allt í ljós. Hent á skurðborðið og negld saman eins og þyrluspaðinn í Einari Áskeli. Mikið er ég þakklát í dag. Fór bara eitthvað að velta þessu fyrir mér að þeta hefði getað farið allt á annann veg og ég í hjólastól með engin börn. Mikið er maður eitthvað fattlaus stundum á góðu hlutina.

En gott veður og ég ætla að halda áfram að þrífa. Næ bráðum í tannburstann til að skrúbba á milli skápa.
Farið varlega í umferðinni og sjáið nýju Michael Moore myndina og öðlist nýtt sjónarhorn á heilbrigðiskerfið okkar.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá hvað ég man eftir þessari spelku..."Vala viltu ekki fá þér sæti?" hvað er fólk að væla yfir magabeltum...en allavega farðu nú vel með þig elskan....ást og endalaust af sakni frá bibbunni þinni.....

Nafnlaus sagði...

Ég vil fá mynd af þér með bumbuna takk fyrir takk, er alveg að missa af þessu AFTUR!!!!!!
Trúi ekki að þið hafið legið yfir sjónvarpinu í útileigunni hvað með að njóta íslenskrar náttúru? Og eitt enn.... aftékka Crocksskóna takk fyrir takk. Sakna ykkar og langar svo að koma og kyssa bumbuna. Trúi ekki að hobbiti geti fætt risa, hvernig verður þessi fæðing, passaðu þig að gera númer 2 áður ;)
Katrín aussie

Nafnlaus sagði...

Jám takk huggulegar, sakn yfir til ykkar líka. Farið nú að drífa ykkur heim.
Ég skammast mín ekki alveg jafn mikið fyrir tölvugláp á þingvöllum og fyrir skóna. Þeir eru bara lífsbjörg í þessum aðstæðum. Ég er ekki að halda í gamla reppið og er komin í ljótheitapakkann. Mála mig samt enn og reyni að halda fókusinum hjá fólki fyrir ofan hné. Vonandi sér þetta enginn og ég reyni að halda mig í þeim samt innandyra;)
kannski verður þetta ekki risabarn...vonum ekki;)

-Vala smarta

Nína sagði...

Hæhæ
Ég man eftir því þegar þú manaðir mig til að kýla þig í magann. Þá varstu þrettán ára. Ég sá mér aldeilis leik á borði og þrusaði í magann á þér, með þeim árangri að handleggsbrotna.. næstum því.

Ég og þetta belti dont mix.

Takk fyrir kökuna um daginn, skoppa kannski yfir til þín með peysuna.

Ég fór í bíltúr í gær og tók skemmtilgar myndir. www.flickr.com/photos/ninasalvarar

Love you!