Ég fór í foreldraviðtal í dag. Mér hefur hingað til fundist foreldraviðtöl vera fullorðinsathöfn og aldrei inklúdað mig í svoleiðis boð. Nú varð breyting á og ef einhver hefur talað um fermingar sem eitthvað svona sem kemur manni í fullorðinstölu þá er það bara litlibróðir foreldraviðtals. Núna er ég semsagt orðin fulllorðin á mínum eigin mælikvarða.
úff já það tekur á.
Merkilegt hvað ég get orðið ofuráhugasöm um ýmislegt. Átti samræður við eina vinkonu mína um daginn og kom það upp úr kafinu að við erum báðar haldnar ofuráhuga á óléttum og fæðingum. Fáum báðar svona sting í mallann ef einhver er að fara að fæða og spennumst allar upp þegar við heyrum af einhverri óléttri. Ég hef mjög gaman af því að lesa fæðingasögur kvenna sem hefði verið miklu meira en óhugsandi fyrir ekki svo löngu síðan. Ég held samt að það sé skemmtilegast þegar það kemur eitthvað smá uppá í fæðingunni og allt fer vel að lokum. Svoldið eins og gamlir reyfarar. Ég þarf kannski að leita mér aðstoðar. (Og taka mörtu með;))
Ætla að láta fylgja með mynd af okkur huggulegu kvendunum á síðustu metrunum í "ástandinu" og óska Kötu og Krissa í leiðinni til hamingju með hinn ofurkrúttlega Erling Snæ Nóavin.
4 ummæli:
Oh ég er svo hrifin af þessari mynd. Kannski eftir nokkur ár getum við tekið aðra og þá er ég með, með bumbu?
Kossar og saknaðar knús
Sjáumst í Des
Katrín aussie
Vala jeminn þú ert orðin fullorðin...ég vissi að þú ættir tvö börn en ég er alveg sammála um að mér finnst foreldraviðtöl hljóma eitthvða meira grövn upp en að punga út tveimur yndislegum börnum...en þið kata lítið sko vel út á pikkinu og ég hlakka sko til að sjá þig og þína er orðin leið á að sjá BARA myndir....þetta er samt ekki ástæða til að setja ekki myndir á netið!!! ást og alltof mikið sakn!!! bibba
OMG hvað þið eruð sætar!!
Það eru kirkjuklukkur í eggjastokkunum mínum.
Katrín; Ekki spurning, það er kemur ekki til greina að hafa þig næst með í fjörinu;)
Bibba: Já ég er víst fullorðin, allavega að nafninu til;) Ég tel líka niður dagana vil fá bibbu mína heim núna!
María: Hvernig er það kemuru ekki bara með í fjörið næst? því fleiri því skemmtilegra;)
Skrifa ummæli