Ég gleðst yfir því að sjá að fleiri séu sömu skoðunar og við hjú, hvað varðar endurútgáfu þessarar bókar. Ég gleðst yfir því að ég sé í þessum 12 prósentum sem stendur ekki á sama að þessi fordómafulla og tilgangslausa bók eigi endurkomu á íslensk heimili. Upphefjum Mugg heldur með endurútgáfu á Dimmalimm.
Ég vona að eiganda þessarar greinar sé sama þó ég linki á hana en ég vil endilega benda fólki á að lesa þetta;
http://b2.is/?sida=tengill&id=260114
Að tala um þessa bók sem menningarverðmæti finnst mér til háborinnar skammar fyrir "vel upplýsta" þjóð.
9 ummæli:
vá, ætla að linka þessa grein hjá mér, á ekki til orð þetta er svo fáránlegt!
En Frank moody er ekki fáránlegur, eða kannski bara pínu;)
Öspalösp
Já ég er sko sammála ykkur, en það eru það mjög fáir. Ég veit að ein öldruð frænka mín sendi manneskju útí búð fyrir sig að kaupa fimm svona bækur til að gefa í jólagjafir..
Vonandi hafa foredrar vit fyrir börnunum og skila þessum bókum ef þær birtast um jólin .
Ég ætla allavega að gera það eins og mér einni er lagið hahaaha :)
Linda
Jebbs görls, gott að við erum réttum megin við girðinguna.
Ösp hvað Frank varðar þá er ég varla að trúa þessu kommbakki eftir Antifox Mulder.
Linda, ég myndi henda þessum bókum í hausinn á þeirri gömlu. Óskandi að það væri skilaréttur á frænkunni...;)
tíhí...
er að fara að horfa á síðustu 2 þættina í californication!!
Ösp
Ohhh...
Jáff þessi bók er útí hött.
En hvað varðst californication þá var ég alveg alein í skápnum með að finnast þetta frábærir þættir.
Er alveg miður mín ennþá yfir að ég GLEYMDI að horfa á þáttinn á sunnudaginn!
Er voða glöð að ég er ekki bara svona pervertísk - heldur eru þetta góðir þætti og hann ER sexy ;) og hana nú :)
Jahá Marta mín, þetta eru rosalega góðir þættir og jahh ...I´d do him;)
Ekki samt í x-files anticlimaxinu eins og kom fram ofar.
Moody kann hinsvegar á taktana. Ruddalegur, hefur ekki vott af félagslegum hæfileikum og frekur og eigingjarn, tillitslaus, blankur og listamaður í þokkabót...ætli þetta sé ekki allt það sem kvenfólkið heillast að. Undarlegt, ekki satt?:)
jei sé þíg eftir 45.daga...bibban
Get ekki beðið;)
Skrifa ummæli