
Kæri G. H. Haarde og Biskup.
Ég rita þetta bréf sem námsmaður á framfæri Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort það sé möguleiki á því að færa jólin fram í janúar fyrir námsmenn.
Það gefst lítill tími til jólabaksturs, kortagerðar, kransaskreytinga og gjafainnkaupa svona í þessum prófamánuði ..og auðvitað bænahalds.
það virðist líka mun eðlilegra sökum framfærsluáætlana hjá gjafmildum sjóðnum að geta haldið blessuð jólin í útsölumánuði. Janúar er líka frekar þungur og dimmur mánuður og þetta myndi stytta biðina eftir vorinu, síðan gerist ekkert spennandi í janúar hvort sem er.
Er þetta mögulegt?
Kærar þakkir.
Vala og eflaust fleiri.
2 ummæli:
heyr heyr...bibban er sammó...eða bara sleppa því yfir höfuð að þurfa að fara í skóla....hata skóla!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég heyrði í Geir og hann bað mig að minna þig á að jólin snúast ekki um gjafir og tilstand. Þau snúast um að vera með ástvinum og fjölskyldu. Eins og mér. Hann sagði líka að ef þú vilt gefa af þér, þá ættir þú að muna að það er tvöfaldur fagnaður í lífi barnsfaðirs þíns, jól og þrítugsafmæli. Og hann minnti á að mér þætti vænt um ársáskrift að sýn2 til að fagna þessum tvöföldu tímamótum.
fyrir hönd Geirs,
Ólafur.
Skrifa ummæli