
Eins og góðum hjúum sæmir þá tókum við janúarföstudagskvöld uppi í sófa með ostaköku og tvær skeiðar að vopni og horfðum á Waitress. Ég verð að segja að ostakakan var bara til að toppa þetta. Ég hélt að ég væri að pína Óla greyið í svona klassískt chickflick og sá það reyndar á svipnum á þessari elsku að Jessie james var aðeins hærra á óskalistanum. En þessi mynd er stórgóð. Ég ætlaði að knúsa skjáinn þegar ég sá síðan gamla vin minn hann Matlock. Ég var einmitt að velta því fyrir mér um daginn hvort að hann væri lífs eða liðinn. Hann er eitt það mest likable gamalmenni sem ég veit um, að meðtöldum gömlu hjónunum í Batteries not included.
Ekki láta Felicity hræða ykkur því hún er ekki sama óþolandi fullkomlega leiðinlega Felicity og í þáttunum. Þarna á hún í alvöru tilvistarkreppu, ekki bara af því að einkunnin hennar á stærðfræðiprófinu var 10+ í stað 10++. Anywho góð mynd. Ég mæli samt með ostaköku með henni því það er fátt annað en kökur sem mann langar að borða í þessari amerísku pæ mynd.
Samantektin er því Juno very næs og waitress very næs. Mynd morgundagsins verður vonandi Baby Mama með kvendinu úr 30 rock því Hollywood er með óléttur á heilanum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli