laugardagur, janúar 05, 2008

gledilegt nytt ar!




Jæja það er komið, árið sem ég verð 28. Þá eru það bara 2 eftir og talan er komin í 30. þegar ég var minni þá hélt ég að ég yrði orðin gömul kona þegar ég yrði þrítug. Svo er nú aldeilis ekki.
En þessi 2 ungu ár sem ég á eftir ætla ég að nýta vel. Ég verð nú samt að segja strax frá því að betri helmingurinn minn er orðinn 30 og bloggóska ég honum til hamingju. Er nú löngu búin að því venjulega.

Það er víst eitthvað trend hjá öllum að gera upp árið á blogginu sínu og ég er að spá í hvort að ég ætti að gera það sama.

janúar- komst að því að ég var kona ekki einsömul og var það þrælfyndið.

Frá janúar og fram í lok september - var kyrrsett í Rvk og bannað að fara út fyrir borgarmörk. Ég mátti svo ekki vinna á þessum tíma svo ég veit ekki alveg hvað ég á að setja í uppgjörið þarna á milli.

Sept- þá kom hann Nói minn í heiminn og breytti öllu eins og Matta gerði líka fyrir 2 árum. Það var vægast sagt frábært. Ætli þetta sé því ekki bara besta árið og ekki meira um það að segja.

Ég gæti farið út í tónlistarár eða pólitískt ár eða slúðurár eða...en ég læt fagmenn um slíka hluti. Thumbs up fyrir líðandi og komandi ári.

Elsku vinir, takk fyrir liðið og tökum nýja árinu fagnandi. Þetta verður besta árið hingað til.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

án efa! Hlakka mikið til ársins 2008, er viss um að nú sé komið að því að heyra tengdó syngja í einhverju af komandi partýum!!

hehe

Tvibbamamma

Nafnlaus sagði...

ohhh vildi ég gæti verið meira með völunni minni árið 2008 en ég var 2007 það var hreinlega til skammar!!!! hvað með húsmæðraorlof? fyrir 1 júlí...bibban saknar þín og þakkar allt gamalt og gott