sunnudagur, mars 16, 2008

Skóblæti


Ég er haldin skóblæti. Það er ekkert sem lætur mig kikna jafn mikið í hnjáliðunum og fallegir skór. Ég er svo veik.

Updeit- ég er hugfangin af 10 skóm, það eru 5 pör og verðmætið eru um og yfir 100.000. (Ísland bezt í heimi?)
Ég vildi óska þess að ég væri Imelda Marcos. Allavega skil ég hana vel. Til hamingju með sýknuna Melda mín, vonandi finnuru eitthvað fleira fallegt til að kaupa þér.

2 ummæli:

a.tinstar sagði...

og ef ég sé munaðarleysingja á förnum vegi mun ég ekki klappa á kollinn á honum, heldur reyta af mér hárið og hlaupa öskrandi í hina áttina. eru þeir ekki auðþekkjanlegir í bláum kjólum með nafnspjald?
við dúfa erum í störukeppni við borðið. hún er að taka mig á taugum með tilheyrandi dynkjum þegar hún hleypur yfir gólfið og trommar með fætinum í tréstigann, skúbbar sér upp í stól sem brakar í og bara BIRTIST! waa! svo smjattar hún bara. hvað næst? 1,2,3, banka í vegg!?
varðandi manolo....ég man eftir að hafa rannsakað þann hönnuð af því tori amos gekk alltaf í honum, þ.e. skónum sem hann hannar, þá vissi enginn hver þetta var. núna er hann orðinn eins og philippe starck í ninnlit útlit. allir verða að eiga 1. og að lokum ugyfrfu!

grojbalav sagði...

já Manolo varð svo heitur eftir að Sarah jessica var alltaf að þykjast vera Carrie á visatrippi með manolos í annari. Ég fann bara enga aðra mynd í fljótu sem passaði við.
Dúfa hljómar alltaf eins og endurholdgaður hippi. Hún hræðir mig stundum.