
Ég geeeeet ekki lært þetta. Leiðindapróf.
En aðrar fréttir eru þær að við flytjum í sumar. Nú fæ ég mér træbal trampstamp, blítsa hárið og kaupi mér mjaðmagallabuxur og drekk bríser á miðvikudögum. Ég er búin að fara í ljós svo þetta er ekki jafn tímafrekt. Keflavík here we come:S
En að allri kaldhæðni slepptri þá fáum við líklega íbúð á Keili og Óli er kominn með nýja vinnu, hann segir betur frá því öllu.
Ég hlakka svo til að fá aðstöðu, jafnvel aðstöðu til að fara loksins að teikna og mála og börnin fá leikpláss og geymsludótið okkar þarf ekki að eiga lengur heima í stofunni, kemst í stelpublak vonandi tvisvar í viku, komin með átaksvinkonu og vonandi dagmömmu. Sweet. Nú erum við fjölskylda og það þýðir ekki að gráta 101 og 107. Það bætist vonandi við nýr bíll í staðinn.
1 ummæli:
WHAT....hvað er þetta eiginlega...allir að flýja á reykjanesið...þú getur leikið við systu á næsta bæ...jeminn...það er þó eitt jákvætt maður getur alltaf kíkt í heimsókn beint af flugvellinum;) en þarf samt aðeins að melta þetta...kann svo vel við ykkur á hagó...en til lukku samt...kiss kiss og útaf
Skrifa ummæli