þriðjudagur, mars 18, 2008

Mr. Chuck Jones

Ég er svo glöð yfir því hversu líkar við mæðgur erum. Núna er "Horton hears a Who" að byrja í bíói og Matthildur fær að eiga allar auglýsingarnar úr mogganum og safnar þeim. Hún kemur líka reglulega með tilkynninguna " þegar ég er búin með hlaupabólu þá ætla ég að fara að sjá Horton!"
Ég er algjörlega forfallinn Seuss aðdáandi og hlakka held ég meira til en Matthildur og svitna í lófunum af spenningi.
Það er eitthvað við þetta allt saman sem er svo magnað.
Ég hef svo oft hugsað um hvort að Jörðin sé bara ryk í skónum hjá einhverjum. Það er oft gott að vita að ég sé ekki ein um að hugsa þetta.
En annað sem hrífur mig er hann Chuck Jones. Þegar ég var lítil og horfði rosalega mikið á tomma og jenna þá fóru ákveðnar T&J myndir afskaplega í taugarnar á mér. Það var ákveðið tímabil sem þær myndir spunnu en það voru teikningar meistara Chuck Jones. Ég verð að segja að ég hálfskammast mín fyrir að hafa fundist hann leiðindateiknari sem barn en í dag er hann einn af mínum uppáhalds. Hann er líklega svona Maradonna í teiknimyndagerð. Svo strákarnir séu með;) Aka hönd Guðs. djók.
Nei allavega þá er hann líka svona mastermind sem kom mikið að teikningum Dr.Seuss tiknimyndanna (grinch) og teiknaði heil ósköpin af öðrum skemmtilegum teiknimyndu, Læt fylgja link með á gamlar teiknimyndir.




updeit fann bara leiðindarremix af þessum tomma og jenna þáttum sem mér fannst alveg off í den.
sjá hér:

1 ummæli:

a.tinstar sagði...

niboo diboo dowchooo! jamm það eimir enn af þessum tilfinningum mínum í garð hinna hvössu bebop jazz tomma og jenna. ég fékk marbletti eftir þá. enn hann geris dr.seuss og allt annað frábærlega. þessir tommi og jenni voru fyrir fullorðna og ég þoldi ekki þegar fílaþátturinn var sýndur í akraborginni...