Núna erum við Nói búin að liggja á spítalanum í rúman sólarhring og loksins er eitthvað að gerast. Það er verið að endurskoða lungnamyndir og ástand í heild. Mikið sem móðurhjartað mitt tók aukaslag og frelsaðist því loksins er einhver að hlusta. Það er semsagt að koma í ljós að lungnamyndirnar eru ekki eins og þær áttu að vera. Lungnabólgan er til staðar, en það sem verra er að það er eitthvað meira. Vinstra lungað er meira þanið en það hægra en það er ekki alveg eins og það á að vera. Það sem er núna verið að rannsaka er hvort að aðskotahlutur hafi komist ofaní hann og er eitt hóstakastið hans mjög líklegt sem valdurinn af þessu öllu. Þetta er samt bara ein tilgátan og hún verður rannsökuð í fyrramálið. byrjað verður að svæfa hann og senda í segulómun til að ná betri myndum. Eftir ómunina þá verður líklega svokölluð lungnaspeglun. Við vitum lítið meira fyrr en eftir ómunina en svona er útlitið í dag. Hann er ekki að gubba jafn mikið en er enn að fá vökva í æð, verður á sýklalyfjunum áfram og líklega verður þetta svipað á morgun.
Bið að heilsa, og krossið putta.
föstudagur, september 12, 2008
fimmtudagur, september 11, 2008
Spítalaheimsóknir
Ekki vorum við heppin að losna við pestir strax. Nói náði sér í lungnabólgu á nýjan leik og við erum búin að stunda lækna eins og aðrir stunda jóga. Það er því miður allt of lítið hlutfall lækna sem hlusta á mæður, sérstaklega séu þær í strigaskóm og undir þrrítugu. Af 6 læknum þá voru 2 sem höfðu eyrun opin og settu barnið í röntgen. í bæði skipin voru það þeir sem uppgötvuðu lungnabólgu.Ég gæti talið upp gríðarmörg absúrd komment sem ég hef fengið frá læknum sem fengu mig til að efast um prófgráðuna þeirra. En sem beturfer þá er megnið af þessari stétt góður læknar og ekki uppfullir af karlrembingi og hroka.
Núna er Nói kominn með nál í æð og er með stóra spelku sem nær upp á olnboga, við förum reglulega í lyfjagjöf því barnið heldur engu niðri. Vonandi vonandi vonandi virka þessi lyf og hann verður búinn að n á sér í næstu viku. Ég held samt að ég hafi aldrei kunnað vel að meta mæður fyrr en ég varð ein slík. Ég hefði aldrei trúað því hversu mikil vinna bíður mans að 9 mánaðar (6) meðgöngu lokinni. Að vinna 24 tíma vinnu ásamt því að vera í einhverju litlu eins og skóla (samanborið við hitt) getur gert mann óhuggulega útlítandi. Ég rakst á mig í spegli í morgun og ekki kannaðist ég við að hafa hengt upp þá mynd sem við mér blasti. Þreytuleg húsmóðir með bauga og maskara dagsins áður, hárið eins beyglað og mögulegt væri og með hor á öxl. Eg reyndar var uppi á spítala með lasarusinn fram á nótt og náði rétt svo að klæða mig úr helmingnum af fötunum þegar ég kom heim. Ótrúlegt eða ekki þá er þetta besta og skemmtilegasta vinna sem til er og plúsarnir ná svo hátt yfir mínusana að þessi færsla verður vonandi gleymd á morgun.
En núna er þessari langdregnu væluþreytufærslu lokið. Takk fyrir að hlusta.

laugardagur, september 06, 2008
það er lítið að frétta, Nói aftur orðinn lasinn. Vonandi er þetta stutt flensa, elsku kallinn minn er varla að þekkja annað núorðið en að vera las. Það er alveg glatað.
Annars fór ég í ferð með skólanum í gær. Er beygluð í dag og ekki er það nú gott að vera beyglaður þegar barnið er las. Þá er bara að suck it up, setja hausinn í kalt vatn og hoppa aðeins. Slá sig utanundir og fá sér mandarínu.
Ferðin í gær var hálfgerð óvissuferð og enduðum við fyrst í fornleifauppgreftri hjá Þjórsá. Merkilegur fundur þar en þar var góss og rústir síðan á landnámsöld. Hann sagði að það væri allavega ekki yngra en 1000 kannski um 900. Það er magnað. Annað sem mér fannst ekki síður magnað er það að það á að virkja blessaða ána eins og allt annað í þessu bráðum fyrrv. huggukega landi og drekkja fornminjunum. Finnst engum skrýtið að hafa ekkert heyrt um þetta? Ég verð að segja fyrir mitt leyti þá sauð pínu á mér. Þvílíka bananalýðveldið.
Síðan fórum við ansi magnaða Krýsuvíkurleið og margt fallegt sem við sáum. Þar á meðal laut sem við stoppuðum í og átum bláber, heimasmurðar samlokur og sötruðum fínsta Carlberg til að skola þessu niður. Þetta var ekki ónýtt. Enduðum síðan á sýningu suðsuðvestur í kef þar sem skólafólk útskrifað og ekki, sýndi verk sín. Note to self, alveg slaka á bjórnum. En þetta var gaman, vildi bara að krílið mitt væri ekki lasið núna.
Æ bara því ég var að skoða þessar myndir saman þá varð ég að setja þetta aftur inn. Mér finnst við svo líkar á mörgum gömlum myndum.

og ein mynd af tímabundna tattúinu sem barnið er mjög stollt af:)

Fyrirfram beðist afsökunar á sorgarröndum. Þar sem mikið hefur verið rætt um svoleiðis fyrirbæri í vinahópnum, týpískt að ég blasti þá mynd af þessu. Bannað að kasta grjóti úr glerhúsi.

fimmtudagur, ágúst 28, 2008
Eruð þið eyrnalaus. Við unnum ekki leikinn. Krúttlegt samt að vera í svona opnum vagni eins og keisarinn í róm. Líka eitthvað mega krúttlegt við að fara skólavörðustíginn og laugaveginn. Allur múgurinn farinn að leggja í vana að fara í milljónþúsundkrowdi að æpa eitthvað. Áfram Ísland..Leikurinn auðvitað löngu búinn og þeir töpuðu. Samt fínt að vera með silfur en ég væri líka alveg til í medalíu og ég tali ekki um að fá fálkaorðu fyrir að hafa aldrei unnið t.d. júróvision? Ég bíð spennt við símann og pússa gullstrigaskóna.
Annars var sætasti frumburður heims að eiga afmæli um daginn. 3 ár og rúsinan næstum jafn stór og mamma sín.
verð að setja mynd af litla skrípinu.

Þar fyrir utan er skólinn farinn í gang. Ég var með einhvern kvíðahnút í mallanum yfir því að vera að byrja aftur, en þvílík sæla að koma aftur í skólann. Ég hef loks tíma til að velja kvikmyndakúrsinn sem ég er búin að vera að setja á hakann. Ég elska að mæta í skólann og horfa á myndir og tala um myndir og fá að gera mynd is this real og ég fæ einingar og allt.
Ég keypti passa á shorts & docs og mikið var þeim pening vel varið. Þetta er æði. Sit ein með maxipopp og kóla í gleri í austurbæjarbíói og líður 5 ára. Nema að ég hefði auðvitað aldrei farið ein þá. Þetta er svo ljúft. Þið sem hafið einhvern áhuga á kvikmyndum, skellið ykkur á passa, það er búið að framlengja um 2 daga og mikið af þessu verður endursýnt. Snilldin ein.
Núna ætla ég að fara að taka til og undirbúa. Passið ykkur á huggulegu blondínuni þið sem komið á laugardaginn.;) Þá er ég ekki að tala um frumburðinn.

föstudagur, ágúst 22, 2008
sunnudagur, júlí 27, 2008
það er ekki hægt að vera meira krútt en þetta...
pabbi

Mamma (munurinn er greinilegur þar sem ég er með augnhár/augabrúnir)

komin heim úr sumarfríi.
föstudagur, júní 20, 2008
sól

Sonurinn er alltaf á hausnum. Ég brá á það ráð að smella hjálm á hann. Ég hef oft gantast með þetta, en í dag varð þetta fúlasta alvara eftir svæsna dynki. Hann var svoldið rogginn með þetta frábæra höfuðfat.
Dagurinn var samt hinn huggulegasti, við fórum í grasagarðinn með krossgátublað og barnið svaf værum blundi á teppinu. Það komu nokkrar endur vaggandi að kíkja á hann en sneru við þegar þær sáu að hann átti ekkert brauð handa þeim og plóman hans bragaðist ekki vel.
Óli varpaði öndinni léttar, þar sem honum er ekkert um endur gefið.

miðvikudagur, júní 18, 2008
gleðilega þjóðhátíð folks
Vaknaði eftir útsof..þeas kl 9. Skipti við manninn og leyfði honum að lúlla. Við bökuðum saman mæðgur og litli lúlli horfði á.
Við skelltum okkur síðan í spariföt og vatnsgreiddum drenginn og hlupum af stað í "skrúfugöngu"*á Hagatorgi. Við komum of seint enda tekur kökubaksturinn sinn tíma:) Skrúfugangan var farin en við hlupum á eftir mamman hangandi í kerrunni í spariskónum og börnin hvöttu pabbann til hlaupadáða. (ekki í alvöru samt)
Náðum skrúfugöngunni þegar hún stoppaði, þeas var komin á leiðarenda. Fórum og keyptum gasblöðru handa frumburðinum sem var búin að spyrja endalaust um blöðru síðustu daga. Krakkinn ég, þurfti að fá að kaupa stærstu og flottustu blöðruna sem til var í básnum, auðvitað. Ég átti nú eftir að bölva seinþroskanum í mér því tvíburakerra með blöðruferlíki í viðbót í vindi, er ekki vinsælasta farartækið í 50 þúsundmanna þrengslum. Svoldið eins og að keyra Hummer á hjólastígum Kaupmannahafnar. Mörg ill augu og nokkrir með hornhimnuskemmdir eftir að hafa fengið blessaða blöðruna í augað.
Börnin í sól. Eitt sést og annað ekki.

Rákumst á litlu krúsluna hana Lovísu Lilly, mömmuna og ömmuna, okkur til mikillar gleði.

Mæðgurnar eldri

Nói með störuna á ömmuna sem hann ætlaði að eiga og fara með heim

Litli sæti kerruþjófurinn

Systur og bræður

Systur og bræður en ein á hlaupum

Tinmaðurinn ógurlegi og matta ekki alveg viss

Taka 2, en hún er ekki ánægð með hann

Búin að fá nóg, burt með hann...og ljónið líka

Við röltum síðan um götur og lögðumst í nokkur sólböð í góðu skjóli, sáum marga skemmtilega vini og vandamenn og sáum glimps af galdrakallinum í Oz. Matthildur er alveg eins og ljónið. Skíthrædd við fólk í búningum rétt eins og við dót sem hreyfist. Hún er ekki hrifin af því sem er ekki normalt og hagar sér eðlilega. (Sbr. myndum af tinmanninum fyrir ofan)
Matta segir Nóa leyndó og hann er spenntur í miðri sögu

Þegar heim var komið tók við grillveisla með skemmtilegu fólki og er dagur var að kveldi sofnuðu börn möglunarlaust á koddanum á innan við fimm mínútum. Börn eru óeðlilega falleg svona sofandi.
Dagur að kveldi kominn og börnin í draumalandi

Góður dagur og annar skemmtilegur á morgun. *Rop*.
Já eitt enn, það er skemmtilegt frá því að segja að eftir langt þrauk með ansans blöðruna þá sprakk hún á leið inn um dyrnar heima. Ansans.
Sumarfrískveðjur.
*Matthildur þverneitar að kalla þetta skrúðgöngu því augljóslega heitir þetta skrúfuganga. Ég endaði með því að láta í minni pokann svo framvegis verður talað um skrúfugöngur á þessu heimili.

mánudagur, júní 16, 2008

Atburðir dagsins.
Matthildur klippti hárið á hestinum fína, því hann þurfti verulega á klippingunni að halda. Hann beið mín blautur og stutthærður á eldhúsborðinu, því hárskerinn hafði ákveðið að fara frekar að lita en að þurrka honum. Ég þarf greinilea að passa uppá það hvar naglaskærin eru geymd. Note to self.
Fór með eldri gorminn í ikea. Við skemmtum okkur prýðilega, sungum "allt fyrir oostina" í bílnum og borðuðum ís.
Vð hjónaleysin settum saman ikeahillu. Það var á mettíma og engin naglaför framaná. Allt gert rétt í þetta skiptið og jafnvel að við gætum sótt um vinnu hjá Ingvar K. við samsetningu húsgagna.
plan morgundags, lakka glugga og raða í hillur.
sunnudagur, júní 15, 2008
Labbakútur

tinna les "einn í heimi"

sætabaun

"ekki potímih" leikurinn

Glaða Matta

Endalaust glaðamatta

Glaðihrafn

Hissaglaðihrafn

grínarinn

Alvarlegi maðurinn

"mamma sjáðu ég er læknirinn"

Til að létta aðeins lundina, þá set ég inn myndir af fallegustu börnum heims.
"mamma ég elska hárið á þér, það er svo fallegt og svo góð lykt af því" ..er setning sem bræddi mig í spað. Hún grúfði sig í hárið og nuddaði sér uppúr því. Gullkornin eru farin að streyma og helst eitt á dag. Ég ætla að fara að vera duglegri við að skrá þetta hjá mér. Kem með best of fljótlega.

Mér er orða vant.
Ég spring inn í mér af reiði. Þetta er svo lítið brot af því sem er að gerast, svo lítið lítið brot.
sunnudagur, júní 08, 2008
Tvennt grætti mig um helgina.
Ég horfði á lokaþátt Grey´s anatomy með skjálfta og ekka, blaut niður á bringu.

Hitt sem grætti mig var öllu mikilvægara. Sex and the city-the movie. Ég hef verið forfallin aðdáandi frá byrjun og kann marga þætti utanað. Ég hélt einusinni að ég væri Carrie, bara blönk í mun leiðinlegra landi. Þessi mynd stóðst algjörlega undir væntingum. Ég hló og grenjaði til skiptis. Ég var svo leið þegar mynd kláraðist því nú er ævintýrið alveg á enda. Farvel til vinkvenna minna 4.
Sunna og Kalli, innilegar hamingjuóskir með litla kútinn:*

laugardagur, júní 07, 2008
Besta heimildamynd allra tíma!

Vóvóvó, ef ég hef einhverntíman kallað einhvern tölvunjörð þá dreg ég það algjörlega til baka! Var að horfa á þessa rosalegu mynd og fólkið í henni er ekki eins og við. Núna trúi ég á Cruise og Travolta og á vísindakirkjuna í einu og öllu, því það eru geimverur á meðal vor. Hólyguacamoly! Þetta er tækniútgáfan af myndinni Stevie sem fékk mig til að afneita tveimur klukkutímum í lífi mínu því hún kollverpti hugmyndum mínum um mannkynið. (þó svo að helgarvinna mín 2003 hafi verið búin að gefa mér glimps)
Mæli með því að taka sér svona 90 mín eða svo í að góna á þessi fyrirbæri og elska þetta innst inni við beinið. Og eitt enn..ég mundi eftir því á meðan ég horfði að ég, sú sem harðneitaði því að hafa áhuga á nokkrum tölvuleik, þá viðurkennist það hér með að ég gat spilað appelsínugula donkeykong tölvuspilið mitt með lokuð augun. Kannski ég ætti að hringja í worldchampionscorekeeperinn. Damn að ég hafi ekki teipað þetta.
laugardagur, maí 31, 2008
fimmtudagur, maí 29, 2008
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)