föstudagur, september 12, 2008

Ekki fer það nú batnandi

Núna erum við Nói búin að liggja á spítalanum í rúman sólarhring og loksins er eitthvað að gerast. Það er verið að endurskoða lungnamyndir og ástand í heild. Mikið sem móðurhjartað mitt tók aukaslag og frelsaðist því loksins er einhver að hlusta. Það er semsagt að koma í ljós að lungnamyndirnar eru ekki eins og þær áttu að vera. Lungnabólgan er til staðar, en það sem verra er að það er eitthvað meira. Vinstra lungað er meira þanið en það hægra en það er ekki alveg eins og það á að vera. Það sem er núna verið að rannsaka er hvort að aðskotahlutur hafi komist ofaní hann og er eitt hóstakastið hans mjög líklegt sem valdurinn af þessu öllu. Þetta er samt bara ein tilgátan og hún verður rannsökuð í fyrramálið. byrjað verður að svæfa hann og senda í segulómun til að ná betri myndum. Eftir ómunina þá verður líklega svokölluð lungnaspeglun. Við vitum lítið meira fyrr en eftir ómunina en svona er útlitið í dag. Hann er ekki að gubba jafn mikið en er enn að fá vökva í æð, verður á sýklalyfjunum áfram og líklega verður þetta svipað á morgun.

Bið að heilsa, og krossið putta.

5 ummæli:

marta sagði...

æji aumingja litli karlinn.... Vonandi fást einhverjar lausnir fyrr en síðar...
Gangi ykkur vel og láttu þér batna Vala mín.
Bestu kveðjur

Nafnlaus sagði...

er með putta og tær krossaða...kossar og knús frá dk

Nafnlaus sagði...

Hugsum til ykkar...Vonum að allt gangi vel og að Nói litli nái sé sem fyrst...(er með úlpu og fleira á Möttu sem ég kem á Elfu við fyrsta tækifæri)
Thelma og co.

grojbalav sagði...

Takk fyrir kveðjur;) og kærar þakkir Thelma:)

Dilja sagði...

Ég sendi góða strauma yfir skólavörðuholtið og vona að þið komist heim sem fyrst. Nói köggull harkar þetta af sér:)