Mér var svo gróflega misboðið í gær.
Ég var nýbúin að borða, veit ekki hvort það sé gott eða vont, en mér verða á þau mistök að kveikja á fréttunum. Ég sat södd og sæl í sófanum og þá birtist frétt um sýkta síld sem veiðst hafði á einhverjum miðum í ballarhafi.
Þetta hefði verið alveg nóg og smá viðtal við leiðan sjóara. En það sem birtist mér var fullur skjár af síldarflaki sem var verið að kreista þannig að úr þeim vall gröftur eins og leir í hvítlaukspressu. Ég hélt að ég myndi kasta upp á stofugólfið af viðbjóði og ekki er ég nú kllígjugjarnt stelputrýni. Fyrr má nú misbjóða en ofbjóða.
2 ummæli:
já shitt!!! ég var akkúrat að borða líka og horfa á þetta ógeð!!! og það var ekkert bara veri að kreista viðbjóðslega graftarnabba úr einni síld!!! Það þurfi alveg að sýna þetta oft. Svo hugsaði hjúkkan í mér mikið um það að maðurinn var ekkert með hanska eða neitt.. var bara með hryllingsviðbjóðinn á fingrunum eins og það væri bara sjálfsagt mál!
Mér finnst að það eigi að vara við svona fréttum! siríoslí þetta var það ógeðslegasta sem ég hef séð í sjónvarpi lengi!
OG hana nú
Það er nú "gott" að ég var ekki ein um þetta. Maður ætti kannski að smella þessari mynd á ísskápinn, maður yrði slank eftir mánuð;)
Skrifa ummæli