Helstu félagar mínir núna eru Bubbi, Dóra, Lína, Gulla, Sammi, Doddi, Elías og Obbsídeisí.
Ég horfði á mynd um fanga í dag. Ég held að þeir hafi það ekki svo slæmt, þeir fara út að leika sér og það er eldað ofaní þá. Þessa daga fer eg ekki út, elda sjálf og þríf og helst við í 80 fm alla daga. Ég held að einangrun sé orð sem má alveg nota.
Ég finn samt meira til með litla mínum sem deilir þessari einangrun með mér. Kannski það heiti þá ekki einangrun?
Á miðvikudag förum við aftur í röntgen. Vonandi fáum við þá að vita meira og vonandi vonandi fer þessu ástandi fljótt að ljúka.
2 ummæli:
ætlar litli snudur aldrei ad jafna sig greyid...sendi kossa og knus yfir hafid...tvær vikur i bibbuskottid
Jú litli snúður fór hress og kátur í leikskólann í dag;) Jeiii fyrir því!;)
-Glaða mamman með prófahrukkurnar
Skrifa ummæli