miðvikudagur, desember 10, 2008

Ég viðurkenni

Að ég er haldin leyndarmálablæti.

þessi síða uppfærist á sunnudögum og bíð ég alltaf spennt.
Ég elska að vita leyndarmál, ég kjafta þeim aldrei en ég fæ einhverja varmatilfinningu þegar fólk treystir mér fyrir leyndói. (koma svo)

Ég finn mig því knúna til að deila með ykkur hjartavermandi leyndarmál í skammdeginu.

Ég viðurkenni því hér með að ég er haldin þeirri áráttu að verða að snúa klósettpappírsrúllunni við ef hún snýr "öfugt" á statífinu. Það myndi ég gera sama hvort ég væri stödd á Bessastöðum eða Hlemmi.

Vona að þessi vitneskja hafi vermt ykkur um hjartans rætur.

Kv

P.S. Ég er búin að tala mikið um Dj Bobo í kvöld. Ég elska Bobo, verst að ég virðist alltaf vera ein sem man eftir þessum Jackson tíunda áratugarins.

Njótið vel, Pís át

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Vala
erlíka með þessa sömu áráttu :)en hvað er "öfugt" hjá mér verður pappírsblaðið að vera nær mér...frá veggnum...ef þú skilur heheheh
Gangi ykkur vel í veisluhöldunum :
Mbk, Thelma Bj.

grojbalav sagði...

Já ég ætlaði einmitt að skrifa það, en "rétt" er að láta blaðið ekki snerta vegginn. Það á að snúa að þér. Skemmtilegt að fleiri deili þessu með mér:)
Bið að heilsa í kotið;)

Nafnlaus sagði...

Ég skal segja ykkur það að skv. rannsókn Bandaríkjahers eyðist minna af klósettpappír ef rúllan snýr þannig að blaðið togist að ofan frá að manni. Sem hefur sparað hernum milljarða by now örugglega, og Völu hmm. svona kannski tíuþúsundkall í gegnum tíðina.

Dj Bobo? Ég þekki hann! Hann er Bobo

Greta

grojbalav sagði...

Þetta var gagnleg lesning greta mín, ég mun alltaf hafa þetta í huga. Nú gæti færsla mín skipt um nafn og heitið "sparnaðarráð dagsins"

Nafnlaus sagði...

guð ég sný líka við, bara í hina áttina! SÆLL, hehehehe

tvibbamútta

Nafnlaus sagði...

ég, þú og dj bobo....asap!!

Ö