mánudagur, apríl 16, 2007




Njarðvíkingar fóru heim súrir, mömmudrengir í KR tóku bikarinn. Það var gott. Ekki að mér hafi ekki verið sama þegar ég datt inn á þetta, með Óla minn æpandi í stofunni með magaherping. Skil ekki afhverju strákar fara að æpa yfir svona boltalátum.

Var að komast að því mér til ekki svo mikillar furðu að ég verð líklega búin að eignast tvö börn á meðan ég er engu nær í Lost. Segir það mér að ég sé lífseigur aðdáandi sem ætti alls ekki að gefast upp eða svona hint sem segir mér hinsvegar að give it up & get a life? Ég er alveg að fara að hallast að því síðarnefnda.

Er byrjuð í spennandi kúrs í vöruhönnun sem kætir mig mikið. Gott að enda þessa guðsvoluðu önn á einhverju svona skemmtilegu. Ég er líka haldin krónískri bloggþurrð. Gæti samt endalaust dælt inn soralinkum á þetta blogg sem kæta mig mikið eins og td þessi www.b2.is/?sida=tengill&id=231841 sem ég bara get ekki hætt að hlæja að.
Það mætti kalla þetta hormónasveiflur þegar ég er farin að fá kast á netinu og hlæja eins og api á stofugólfinu og byrja síðan að grenja mínútu síðar yfir tryggingarauglýsingu. Þetta gengur yfir. Það má alveg hughreysta gullmanninn einstökusinnum og minna hann á að þetta sé tímabil, ekki permanent crazyness.
Svo verður þessi líka að fylgja,www.b2.is/?sida=tengill&id=231858 , ætla að fá mér svona á morgun, set afraksturinn á barnaland.

föstudagur, mars 23, 2007

laugardagur, mars 17, 2007

Bloggleti

..er eitthvað sem hrjáir mig þessa dagana. Kannski er það gott, ekkert til að nöldra yfir og allt svona í nutral. Verð samt að deila þessari snilld með heiminum þökk sé breezer sjúklingnum:D (jebb er abbó og langar í einn kaldann núna með ananas)


laugardagur, mars 10, 2007

miðvikudagur, mars 07, 2007

Þema vikunnar heldur afram



Já ég fékk símtal frá huggulegri stúlkukind í dag. Hún sagði mér að mér væri boðið á forsýningu á Legi eftir Hugleik. Þemað heldur því áfram og ég þáði með þökkum á át næstum af henni hendina af gleði. Ég verð að gefa þessari snilld stórt lófaklapp. Ég fékk maskarann í pollum á mallann og sessunauturinn minn var í sömu sporum. Eg verð samt að mínusa þetta massíft vegna lélegrar loftræstingar 200°hiti og ekki opin búlla til að redda sér sódavatni. Pffff...
Beggers can´t be choosers svo ég kyngdi bara munnvatni á extra hraða og vonaðist til þess að ofþornun gerðist ekki á 90 mín.

Ég ætla samt ekki að mínusa þetta beint, verð bara að erfa þetta við leikhúsið, en ég skemmti mér konunglega. Gaman að fara í leikhús, allt of langt síðan síðast. Segir kannski of mikið að vera að leita af sjoppunni í fatahenginu..?

Takk Katz fyrir huggulega kvöldstund:*

Ég get víst ekki skrifað meira því það bíður mín 15 cm hörbútur á borðinu sem ég þarf að gera eitthvað við. Ekki reyna svo að gefa það í skyn að maður sé ekki að vinna fyrir BA gráðunni sinni:S

þriðjudagur, mars 06, 2007



Jæja þá er eins gott að útvarpa því á netið góða að við ætlum að sjá um það alfarið ein að fjölga íslensku þjóðinni. Þetta mission er víst hafið og við stefnum á september, nánar tiltekið.
Við vitum öll hvað Septembermánuður elur af sér frábært fólk:D

Yfir og út,

Fabulous four!

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

já það er unaðslegt að vakna og hlusta á skemmtilega tónlist og dilla rassinum í allar áttir. Með úfið hár og bólu á kinninni. Finnst ég samt skíthugguleg svona á morgnana. Við vinkonurnar vorum líka sammála að maður væri sætastur á morgnana, þegar maður er smá svona bólginn og mallinn enn inni. Svo byrjar allt að glíma við þyngdaraflið aftur eftir ca. hálftíma:D
Ég get ekki að því gert en þrátt fyrir að langt sé síðan ég hlustaði á þetta fyrst þá get ég varla hætt að taka morgundansinn við þetta www.youtube.com/watch?v=LD5sahXoj0U Svona ekta morgunklassík.
...sem og þetta sem er svo skemmtilegt, mig langar alltaf í skó þegar eg sé þetta myndband með Jenny wilson

Minnir mig líka á Kidda minn, hvar ertu eiginlega?

Ætla að þruma inn hérna nokkrum öðrum ryksuguklassíkerum.

Regiina Spector sem eflaust margir eru komnar með gubbuna á....ekki ég danslagið endalausa:)


White stripes og Hotel Yorba. Ég verð alltaf glöð þegar ég heyri þetta og minnir þetta mig líka á svo margt skemmtilegt:)


Þetta er tímalaus klassík með FYC, ég fæ aldrei nóg af þessu og því síður eftir að ég sá þetta frábæra myndband


Ég veit ekki hversu oft ég hef hellt yfir mig bjór þegar ég hoppa af gleði yfir þessu lagi með Bibbunni..Virkar líka vel heima mínus eða ekki bjórinn;)


Pixies, ég þarf bara ekki að segja neitt meira.


The Cure- Friday... mikið sem ég elska þetta lag


Rolling stones- beast of burden. Ég gólaði þetta svo oft í á blússandi siglingu með Tona heitnum:D Ég fæ aldrei nóg.


Sjitt ég gæti haldið enadalaust áfram enda lítið brot. Ég er komin með svona danskitl í mallann og ætla að fara að ryksuga!!
Vonandi eigið þið jafn góðann dag og ég:*
Endilega komið með fleiri lög á tiltektarlistann:D

Kveðjur, Vala Partýöxl

föstudagur, febrúar 23, 2007

Enn einn dagurinn...

..í veikindum. Matthildur er las og ég andlega með henni. Ímynda mér að ég sé voða lasin og sef bara með henni;)
Ég er farin að gruna Teletubbies um heimsyfirráð. Þeir byrja á börnunum og hófust handa um 2000. Eftir nokkra tugi ára, þá verða þeir fosetar sinna heimsálfa, fjögurra sem þeir skiptu bróðurlega á milli sín, ásamt stubbabrauði og búðing. Þeir stíga klaufalega á þegna sína, flissa í hasskófinu sínu og fylgjast með okkur dýrunum á sjónvarpsskjánum sínum á mallanum. Ef við gerum einhvern óskunda þá höfum við verra af og í versta falli verðum við neydd til þess að tala við börnin sem talsettu íslenska efnið í 5 tíma. Það myndi drepa hvern sem er. Sé það fyrir mér að stúlkan sem segir "steppskórsteppskórsteppskórsteppskórsteppskórhefureinhverséðsteppskónamína?" sé með rauð augu horn og hala. Sama gildir um strákinn sem segir fýldri röddu "rigningrigningringningþaðergaman". Saddam held ég ætti bara að vera fegin með dauðarefsinguna sína. Þetta er ábyggilega verra.

Ef einhver er að hugsa hlýlega til okkar hér þá er alltaf velkomið að gefa barninu nýjann stubbadisk..því þessi er kominn í remix og segja þeir, stubb-ubb--ubbarnir-arnir.....segja-segja-segja -segja haaaaaa-aaaa-aaaaa-aaaaaaalló! Þetta er meira en mitt litla hjarta þolir. Matthildur situr samt eins og engill og heilinn hennar forritast í leiðinni. Alltaf er hægt að segja meija bubba...bubba...mamma, bubba!!!!!!
Mig auma.

En að öðru, ég legg til að þið lítið á manninn minn á blogginu sínu, myndarlegur er hann, en í fötunum mínum, not so much. Hann fær samt öll prik í kladdann sinn fyrir viðleitni og sjálfsfórnum fyrir þessi börn sem hann er að vinna fyrir. Þessi elska.

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Jæja

Nú er ég að reyna að setja bloggið aftur í gírinn. Komnir nokkrir tenglar, fáir en ég nenni ekki að setja inn blogg sem eru ekki virk. Setti kröfu á að hafa bloggað frá áramótum:) Ef einhver er ósáttur, setja inn færslu og commenta síðan;D

laugardagur, febrúar 17, 2007

Pan's Labyrinth

Ég get ekki annað en skrifað gleðiskrif. Ég fór ásamt bíófélaganum mínum í bíó á fimmtudagskvöldið og fjárfestum við í miðum á Little children. Á leið okkar í salinn fattaðist það að þetta var frímerkjasalurinn þar sem leikurinn, "Hvar er skjárinn" fer alltaf fram í byrjun myndar. Okkur fannst sá leikur alveg ómögulegur í það skiptið svo við ákváðum að fara frekar á Pan´s Labyrint sem var sýnd í stóra salnum. Ég get alveg sagt að þetta hafi verið það besta sem gat gerst. Ég er orðlaus enn og gleðitárin streyma, enda langt síðan ég sá mynd sem smaug svona inn í hjartað mitt. Enda hálfgerður sökker fyrir ævintýrum, skordýrum, og skrímslum. Ég verð að segja að Amelie fær að rykfalla þegar þessi kemst í hilluna mína og ég er við það að fara að mála pöddur og skrímsli á stofuveggina. Ég vil endilega mæla með því að allir skelli sér á hana sem fyrst og leyfi sér að fara í smá krakkafíling.
Ég verð að segja að ég var lent á sama aldursskeiði og Ophelia var á, enda ekki ósvipuð á þeim tíma með slaufur í hári, prinsessukjólum, orma í vösum og dreymdi um að verða prinsessa. Fann mig með hrollvekjuspenniginn eins og þegar ég lá á gólfinu með hedphonin í plötuspilaranum að bíða eftir því að Mjallhvít yrði drepin af vondu stjúpunni. Gott ef ég fer ekki bara aftur, enda svo ódýrt* í bíó!;)

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Sitt litið af hverju


Jæja komið að smá bloggi.
Lítið að frétta, ég held áfram að furða mig á allskonar skandal í þessum heimi. Þá má efst tróna virkjanagleði skammsýnna pólitíkusa, Baugsmálsfarsinn, transfitugleði Íslendinga sem eru að springa úr fitu og óhollustu, Heilbrigðiskerfisins, þó helst BUGL vandamáls sem er til háborinnar skammar samanborði við önnur norðurlönd. og síðast en ekki síst svimandi hárra skólagjalda í skólanum mínum sem ég er að fatta að eru ekki komin í bankann:S

Ég veit ekki hvort ég eigi að fara að nefna þetta ofurþreytta Eurovision...er þetta ekki bara að verða komið gott. Hvernig væri að setja peninginn frekar í tónlistaþróunarmiðstöð fyrir unga upprennandi aðstöðulausa tónlistarmenn/konur? Hver nennir að horfa á þessar leiðindaklysjur eitt árið í viðbót reyna að hella nógu miklu í sig til þess eins að þrauka fram að íslenska sjóinu, sem eflaust inniheldur útbrennda poppara eða coverbakraddadrottningar, svo ekki minnist ég á ofurhresu fyrrverandi feitabolluna og drottninguna með hæsta enni í evrópu. Ég bara get þetta ekki.

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Va þetta fannst mer fyndið!

if you're in a train, bus or plane & theres annoying passenger next to you
just simply:

1. put your laptop computer on your knees
2. turn it on
3. make sure the person next to you see the monitor
4. shut your eyes & turn your head up to the ceiling
5. click this link: http://www.joemonster.org/i/aa/countdown.swf

mánudagur, febrúar 05, 2007

föstudagur, mars 24, 2006