þriðjudagur, september 16, 2008

Góður dagur


Það eru ekki margar fréttir í dag. Við förum í sýklalyfjagjöf og súkraþjálfun á spítalanum þar sem hann er bankaður af henni Helgu sem er yndislegur sjúkraþjálfari. Það er til þess að hjálpa honum að hósta upp slími. Nói fór líka í svitapróf sem var gert til að útiloka slímseigjusjúkdóm. Við fengum símtal áðan þar sem okkur var tjáð að hann sé sem beturfer ekki með hann. Þetta er því hinn fínasti dagur. Því miður var nálin hans orðin léleg og hann píndur í nýja nál svo hann þarf að læra að venjast því að vera ekki með vinstri hendina nothæfa. Þetta er allt tímabundið samt og hann á að hætta á sýklalyfjunum eftir 2 daga. Hann heldur áfram á sterunum næstu daga samt og pústunum sem hann er alltaf á hvort sem er.
Hann er orðinn svoldið þreyttur á fólkinu í hvítu sloppunum en sem beturfer er mamman alltaf vel liðin þó hún þurfi að hjálpa til að að pína mann stundum. Í stuttu máli-góður dagur í dag.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ææ krúttið. Þetta er sýnist mér alveg sama ferlið og Orri var settur í svitapróf sýklalyf, bank, þanin lungu,slímtappar. Þú verður bara að spyrja þessa herra hvort þetta geti verið bifhára galli ;) en það er nú mikill léttir að þetta var ekki slímseigjan.
Vonum að Helga nái að banka þetta í burtu sem fyrst.
Knús og kossar af skaganum

Nafnlaus sagði...

gleymdi - ef þig vantar friðarpípu heim þá á ég eina nýja og nánast ónotaða ;)

grojbalav sagði...

Hæhæ. Ég ætlaði einmitt að heyra í þér áðan. Keyptiru friðarpípuna?? Ég held að ég þiggi hana með þökkum þegar við komum heim, enda oft óskað þess að eiga svona apparat. Ég er einmitt búin að vera með Orra í huga alla daga því það er allt svo kunnuglegt við þetta ferli. Ófá skiptin sem maður sá hann "laminn" í bakið;) Okkur er mjög létt eftir þetta próf og nú er bara að bíða og sjá hvað þessi stífla er. Vonandi lemur helga þetta burt.
Hvaða læknir var það sem var með ykkur?
Ég skrifa þessa langloku í komment því ég náði ekki á þig á msn. Mátt endilega svara mér þar;)

Nafnlaus sagði...

Ætlaði bara senda spikfeita vinakveðju til ykkar og súkkulaðirúsínur.Matta besta systir má líka alltaf koma í pössun til okkar Erlings eftir 4 á daginn og um helgar,hún myndi örugglega bara digga það:)Vonandi batnar besta vininum sem fyrst,það er allt að sigla í sem besta átt.Megalove catmaster og Erlingur

Nafnlaus sagði...

bibban var að vonast eftir spjalli við völuna sína en það veðrur bara seinna...ást og sakn á ykkur og ég hugsa til ykkar

Ásta sagði...

Batnaðarkveðjur til litla garpsins! Vonandi lýkur þessu bráðum. Gott að hann var ekki með cystisk fibrosis!
Kveðja, Ásta

grojbalav sagði...

Takk Mæðgin. Við verðum að fara að taka ægissíðurúnt fljótlega;)
Bibba, ég þarf að kaupa mér dagbók svo ég geti planað betur, ég gleymi alltaf öllu. Ég óska hér með eftir dagplansbók í afmælisgjöf ;) Vonandi hættiru ekki að reyna skypið.
Ásta, hvernig væri að hafa þig bara á landinu og eiga einn svona lækni 24/7. Það væri sko ekki amalegt;) En já það var ótrúlegur léttir að útiloka það.

Takk fyrir kveðjurnar