fimmtudagur, september 25, 2008

Rosalegur afmælisdagur


Elsku Nói er eins árs í dag. Tíminn skotlíður og hrukkurnar hlaðast upp um leið. Hrukkurnar voru líka að hrannast upp í morgun, við vöknuðum snemma og fórum með litla afmælisbarnið í svæfingu. Við erum búin að vera í rússíbana síðustu daga og í svona rússíbana hugsar maður um allt það versta sem gæti mögulega gerst. Tilgáturnar hafa verið æði margar og það virtist ekki vera hægt að segja til um meinið fyrr en eftir speglunina í dag. Við sátum því sveitt inni á einvhverju herberginu á Landspítalanum í dag og töldum mínúturnar. Ég held að það sé ekkert í heiminum verra en að skilja við barnið sitt í svæfingu. Jú eflaust margt verra, en ég hef ekki upplifað það verra. Í eirðarleysinu kveiktum við á sjónvarpinu og horfðum á Grey´s anatomy. Ég mæli ekki með því að horfa á þátt fullum af fólki að kveðja heiminn á skurðborðinu í svona bið. Um leið og þættinum lauk gekk lungnasérfræðingurinn inn og sagði okkur að þetta hafi gengið mun betur en þeim hefði grunað. Eftir sterameðferðina og sýklalyfin hafði bólgan snarminnkað og meinið blasti við þeim. Hneta í öreindum.
Þetta var hóstakastið sem upphaflega var talað um. Eina og síðasta hnetan hans nóa hafði plantað sér vel og dreft sér um lungað hans. Þráinn Rósmundsson beitti hæfni sinni og tíndi upp hvert einasta brot með bros á vör. Samtalst 24050 kílóum voru létt af hjörtum okkar Óla sem voru búin að dæla óheyrilega miklu blóði og stressi um líkama okkar síðustu daga. Versti afmælisdagurinn endaði sem sá besti og nú sefur hnetubrjóturinn eins og steinn uppi í rúmi og líður mun betur. Takk allir fyrir að krossa puttana ykkar. Þetta endaði vel.

Bkv.
Þakklátasta og væmnasta mamma jarðar í dag.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið eru þetta framúrskarandi frábærlega frambærilegar fréttir! Til hamingju með Nóa Hrafn flottasta hnotubrjót á norðurhveli jarðar.

Ást og knús!

Nafnlaus sagði...

Æ krúttið mikið voru þetta "góðar" fréttir. Innilega til hamingju með afmælisdrenginn.

Þetta venst aldrei með svæfingarnar, hrikalega erfitt að skilja börnin eftir hjá græn klæddu liði er búin að reyna það ca 20 sinnum ;S

Biðjum að heilsa stóru systur

grojbalav sagði...

Takk stelpur:)

Nafnlaus sagði...

En hvað þetta voru frábærar fréttir, þær gætu bara ekki verið betri! Hjartanlega til hamingju með stubbinn í gær - og vonandi fær maður að sjá hann fljótlega :)

Ásta sagði...

Æðislegar fréttir! Gott að heyra að þetta endaði svona vel. Til hamingju með afmælið í gær!
Kær kveðja, Ásta

bibban sagði...

æðislegt magnað og meiriháttar...ást á ykkur...bibban sem fékk gæsabólur og kökk í hálsinn...þá að sjálfsögðu allt vegna gleði...

Nína sagði...

Úff hvad var gott ad lesa thetta. Sé fram á Sólheimabros restina af vikunni!

Verid svo dugleg ad setja inn myndir af krílunum svo ad madur fái ad fylgjast med.

Elskuknús.