sunnudagur, september 14, 2008

Fréttir...eða ekki fréttir

Við erum enn á spítalanum. Nói fór í segulómunina og lungnaspeglun í gær. Því miður þá er þetta ekki eins einfalt og við vonuðumst eftir. Eftir að hafa speglað hann þá sagði læknirinn okkur að Nói væri með þrengsli í lungunum sem ekki er vitað af hverju stafar. Gæti verið fæðingargalli en eins og er þá erum við að bíða eftir mati fleiri lækna erlendis. Þangað til verðum við hér á spítalanum og höldum áfram með sýklalyfjakúr út af lungnabólgunni. Einnig er verið að reyna að komast að því hvað veldur þessum þrálátu uppköstum.
Í dag er Nói frekar hress, þrátt fyrir að hafa byrjað daginn á því að kasta upp. Hann er hitalaus og ekki beint hægt að sjá á honum að hann sé eitthvað slappur. Frekar eins og hann sé á leið í pollagallann og á gröfuna, enda alltaf skínandi glaður og bræðir alla sem koma inn á stofuna okkar. Sem betur fer erum við komin úr einangrun svo við getum núna farið aðeins fram að leika og skoða fiskana. Nói er líka byrjaður að gera eins og fiskarnir þegar hann er spurður hvað þeir gera, hann opnar munninn upp á g´æatt og lokar aftur. Meira endemis krúttið.
En eins og er þá erum við í biðstöðu eftir svörum frá læknunum úti. Meira síðar. Kveðjur, Vala og Nói

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ja hérna! Maður skreppur til útlanda og kemur bara heim í ástand...greyið kallinn en mikið er gott að e-ð er verið að gera fyrir hann. Heyri í þér við tækifæri,

Kveðja Ösp

Nafnlaus sagði...

Ja hérna, það gengur mikið á hjá ykkur!
Vonandi verða læknarnir fljótir að átta sig á hvað er í gangi svo hægt sé að fá litla kallinn friskan :) Þangað til hugsum við til ykkar, svona spítalabrölt er bara það leiðinlegasta sem til er. Stórt knús frá okkur í Fífurimanum.

Nafnlaus sagði...

Aumingja litli snáði.

Við fylgjumst með í Fífurimanum og óskum ykkur góðs gengis.

mbk,
Kristinn

grojbalav sagði...

Ösp: já þú verður að halda þig bara heima;) Vona að það hafi verið gaman úti.

Kiddi og Guðrún: Kærar þakkir, ég verð nu að minnast á það að þið eigið sængurgjöf heima sem er líklega að skreppa saman hratt miðað við myndir af litluni. Ég ætlaði að nýta hana sem tækifæri til að hittast en með þessu áframhaldi þá sendi ég óla með hana eða fæ ykkur til pikka hana upp svo það verði hægt að máta allavega:)