föstudagur, desember 07, 2007

Umsokn um frest




Kæri G. H. Haarde og Biskup.
Ég rita þetta bréf sem námsmaður á framfæri Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort það sé möguleiki á því að færa jólin fram í janúar fyrir námsmenn.
Það gefst lítill tími til jólabaksturs, kortagerðar, kransaskreytinga og gjafainnkaupa svona í þessum prófamánuði ..og auðvitað bænahalds.
það virðist líka mun eðlilegra sökum framfærsluáætlana hjá gjafmildum sjóðnum að geta haldið blessuð jólin í útsölumánuði. Janúar er líka frekar þungur og dimmur mánuður og þetta myndi stytta biðina eftir vorinu, síðan gerist ekkert spennandi í janúar hvort sem er.
Er þetta mögulegt?

Kærar þakkir.

Vala og eflaust fleiri.

mánudagur, desember 03, 2007

desember kominn


Desember genginn í garð og lífið gengur sinn vanagang...að mestu. Dagarnir eru nú sérstakir margir hverjir og er það yfirleitt Matthildi að þakka.
Dagurinn í dag byrjaði skemmtilega en mér var boðin góður dagur og beðið um habbagoj. (hafragrautur á íslensku)
Eftir að ég komst að því að engin leið væri fyrir mig að opna augun sárbændi ég betri helminginn um að sinna þessari bón hennar og fara með henni fram. Auðvitað sinnti hann því og eftir 2 mín heyri ég andköf. "klukkan er hálf fimm!" Matthildi var nokk sama og komin á fætur dagurinn hennar var hafinn. Óli náði að semja við stýrið úr hafragrauti í skyr og því fljótlegra að múta henni aftur upp í rúm. Hún var orðin lasin. Ekki af því að hún vaknaði hálf fimm, heldur af því að hún var komin með hita. Það þyrfti ekki að virkja neitt á þessu landi nema barnið mitt nokkrum sinnum á ári til að ná fram allri þeirri varmaorku sem þarf til að knyja sveitafélög Gullbringusýslu í 100 ár. Þetta er engu líkt þegar hún er með hita. Það sem gerði þennan dag líka einstakann er það að hún fékk 7 nærbuxur í pakka frá ömmu og afa sem voru í útlöndum. Planið var að lata hana hætta með bleyju á næstu mánuðum,og þetta var startið. Eftir að hún sá þessar eðalbrækur sem hún var ekki alveg viss hvernig ætti að klæðast. þá var hún tilbúin að eigin sögn. Hún er búin að útbúa fínt skot inni á baði við hliðina á klósettinu og inniheldur afdrepið bláan kopp, töfrakúluna, Emmubók og gott dass af huggulegheitum.
Þar sat hún á 2 mín fresti í kvöld...í 3 tima og afrekaði ýmislegt á þeim tíma. Öskur og hamingjuóp frá barni og svo foreldrum á ca. hálftímafresti. Já það var nóg að gera. Bteyttir tímar semsagt, bæði fyrir Matthildi og mig...
Núna liggur þessi elska hrjótandi í rúminu með bleyju í náttbuxum og nærbuxunum fínu úthverfum utanyfir allt saman.

föstudagur, nóvember 23, 2007


Nói minn er svo huggulegur. Takk Kiddi T;)

mánudagur, nóvember 19, 2007

Síðasta færsla fór víst fyrir brjóstið á mörgun og fékk ég svona hint frá blogger að þetta væri questionable...Mér fannst þessi gaur bara eiga heiður skilinn fyrir hugmyndaflugið og ég gat ekki annað en sett þessa mynd inn. Svo erum við hjónin greinilega með sérstakann húmor þar sem við hlógum að þessu í góðar 30 mín. Kannski var það bara svefngalsinn í okkur.
Vona að þið sem ekki höfðuð húmor fyrir þessu náið að jafna ykkur á þessu fyrir jól:)

laugardagur, nóvember 17, 2007

Husmaedraorlof?


Vinkona mín er þriggja barna móðir. Hún stakk upp á því að fara á vísatripp borga ekki reikninginn og fá sér langþráð húsmæðraorlof í kvennafangelsinu. Góð hugmynd og ég sagði henni að go for it. Hún þarf svo á því að halda.

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Í skolanum

Kennarinn; "þessi rauða fígúra er eins og tákn einhvers kynferðislegs, svona kynferðislegur undirtónn. Mjaðmirnar svona skakkar og liturinn....hvað segið þið?" "Það er einhversskonar spenna þarna í henni, svona rosalega mikilfengleg, æpir á eitthvað svona eins og fullnægingu"

Listneminn; "já þetta er mamma"

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Það er búið að vera mikið að gera hér í bæ. Törn í skólanum, og törn heima að læra á nýja systemið. Þau eru voða góð, en það þarf að samræma. Það er samt alveg að koma en í nótt td. þá var samræmingin alveg í mínus. Hann vaknaði..hún svaf, hann sofnaði...hann vaknaði. Ég svaf því ekki mikið þessa nótt, en það er bara alls ekkert alltaf í boði. Gæti verið svo miklu verra.

Ég fór í foreldraviðtal í dag. Mér hefur hingað til fundist foreldraviðtöl vera fullorðinsathöfn og aldrei inklúdað mig í svoleiðis boð. Nú varð breyting á og ef einhver hefur talað um fermingar sem eitthvað svona sem kemur manni í fullorðinstölu þá er það bara litlibróðir foreldraviðtals. Núna er ég semsagt orðin fulllorðin á mínum eigin mælikvarða.
úff já það tekur á.
Merkilegt hvað ég get orðið ofuráhugasöm um ýmislegt. Átti samræður við eina vinkonu mína um daginn og kom það upp úr kafinu að við erum báðar haldnar ofuráhuga á óléttum og fæðingum. Fáum báðar svona sting í mallann ef einhver er að fara að fæða og spennumst allar upp þegar við heyrum af einhverri óléttri. Ég hef mjög gaman af því að lesa fæðingasögur kvenna sem hefði verið miklu meira en óhugsandi fyrir ekki svo löngu síðan. Ég held samt að það sé skemmtilegast þegar það kemur eitthvað smá uppá í fæðingunni og allt fer vel að lokum. Svoldið eins og gamlir reyfarar. Ég þarf kannski að leita mér aðstoðar. (Og taka mörtu með;))

Ætla að láta fylgja með mynd af okkur huggulegu kvendunum á síðustu metrunum í "ástandinu" og óska Kötu og Krissa í leiðinni til hamingju með hinn ofurkrúttlega Erling Snæ Nóavin.

þriðjudagur, október 30, 2007

Tiu litlir negrastrakar

Ég gleðst yfir því að sjá að fleiri séu sömu skoðunar og við hjú, hvað varðar endurútgáfu þessarar bókar. Ég gleðst yfir því að ég sé í þessum 12 prósentum sem stendur ekki á sama að þessi fordómafulla og tilgangslausa bók eigi endurkomu á íslensk heimili. Upphefjum Mugg heldur með endurútgáfu á Dimmalimm.
Ég vona að eiganda þessarar greinar sé sama þó ég linki á hana en ég vil endilega benda fólki á að lesa þetta;
http://b2.is/?sida=tengill&id=260114

Að tala um þessa bók sem menningarverðmæti finnst mér til háborinnar skammar fyrir "vel upplýsta" þjóð.

sunnudagur, október 28, 2007


Litli strákurinn okkar er kominn með nafn. Hann heitir Nói Hrafn.

Þar fyrir utan þá er búið að vera mikið að gera. Skólinn að drekkja mér ..eða ég sjálf því atburðir síðasta mánaðar tók tíma frá verkefnavinnu sem ég þarf að skila af mér eftir nokkra daga.
Ég fór samt í leikhús í gær, sem telst til tíðinda..líklega í þriðja skipti frá upphafi. Ef frá eru talin 2 barnaleikrit á þarsíðasta áratug. Ég verð að viðurkenna að ég var að tárast í endann, en ég held að dramatík og tónar Nick Cave hafi farið alveg með mig. Mæli með þessi leikriti, Hamskipti þó ekki nema bara vegna tónlistar og uppsetningu.
Já og Garðar og Sara, til hamingju með giftinguna!

fimmtudagur, október 18, 2007

Leiðindaveður....skítaveður.
Grár dagur með rigningu og þreytu. Ég verð svoooo þreytt.
Dóttir mín var að reyna að setja heimatilbúið tattú í andlitið á bróður sínum. Því var bjargað á síðustu stundu.

þriðjudagur, október 16, 2007


Suma daga þá hljómar allt eins og það sé að fara til fjandans. Talandi um að ólían sé að klárast, heimskreppa í aðsigi, glóbal warming sé að fara að drekkja okkur eða steikja, vindurinn og kuldinn hérna farinn að nísta inn að beini, myrkrið skollið á, bíllinn bilaður, meikið kláraðist og fataskápurinn er tómur (nei kannski ekki að bera þetta saman við heimskreppuna en má alvg bæta því við).
Aftur á móti þá getur ég líka snúið þessu við og séð að það er frábært hér þrátt fyrir kulda og bilaðann bíl. Börnin eru snillingar af Guðs náð. Ylja mér í kuldanum ásamt gullmanninum. Sjaldan betra að eiga huggulega fjölskyldu í kulda og myrkri og kúra öll saman í sófanum mjúka, síðan gefur það manni tilefni til að fara að kafa í kössum eftir ljósaseríunum og blása af þeim rykið. Fitan lekur af mér þegar ég neyðist til að hreyfa á mér rassinn og labba með vagninn á undan mér og hreina loftið gefur manni smá búst. Svo kannski verður bíllinn bara bilaður í smá stund í viðbót.
Þar sem myrkrið er mikið þá þarf maður varla að mála sig lengur þar sem maður sést lítið. Svo er maður líka í svo stórri úlpu núna að fötin innanundir skipta ekki máli. Kannski er þetta ekki svo slæmt;)
Way to live Pollyana....

föstudagur, október 12, 2007

Ég klárlega verð að vera ólétt í brúðkaupinu mínu...

....þó ekki nema bara til að geta verið í þessari múnderingu.

huggulega folkið;)

fimmtudagur, október 11, 2007

Gott kaffi

Drengur er fæddur, heilbrigður og huggulegur þann 25 september. Það er því allt frábært að frétta héðan. Skólinn kominn á fullt aftur, ég er hætt að vagga og 10 kg léttari, frumburðurinn 29 númerum stærri og rosalega greindur í krossgátusmíðum.
Borgarstjórnin er fallin og Dagur B Plebbgertson að fara að taka við. Hrokkinhærði fabio. Mér líst vel á, vonandi bannar hann sölu á volgum drykkjum í Ríkinu.
Ég sá þetta quiz á síðunni hennar Nínu sys og ákvað að prófa, niðurstöður koma ekki á óvart.




You're The Hitchhiker's Guide to the Galaxy!

by Douglas Adams

Considered by many to be one of the funniest people around, you are
quite an entertainer. You've also traveled to the far reaches of what you deem possible,
often confused and unsure of yourself. Life continues to jostle you around like a marble,
but it's shown you so much of the world that you don't care. Wacky adventures continue to
lie ahead. Your favorite number is 42.



Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Bumban fer ekki minnkandi en svefninn gerir það. Því sit ég hér geispandi og bloggandi. Ég er ekki búin að hafa mikið fyrir stafni annað en að fara reglulega á te og kaffi, kaupa mér frappa með karamellu og síðan horfa á afspyrnulélegt sjónvarpsefni. Það er alveg merkilegt hvernig verið er að reyna að murrka úr manni geðheilsu með endursýningum og b þáttum á skjá einum. Kosturinn er samt sá að maður er ekki að borga fyrir það. Stöð tvö rukkar hinsvegar almúgann um hendur og lífeyri fyrir svipað gæðaefni. Ég er svo fegin að hafa sagt þessu upp...þrátt fyrir að hugsa til Opruh með söknuði.

Ég viðurkenni það fúslega að ég horfi á allt svona auðmelt kerlingaefni ef það er í boði. Dr,Phil á samt ekki alveg upp á pallborðið hjá mér. Hann er með svo hræðilegann kæk, blikkar augunum hryllilega fast í gríð og erg svo ég dett út og hætti að heyra um hvað þátturinn snýst og fer að nudda augun mín. Svo er konan hans algjör hörmung. Hann er alltaf að finna einhver verkefni handa henni til að sinna eins og taka viðtal við cher og e-ð. Þær deila bara einu sameiginlegu og þa er að þær eru of strekktar til að geta sýnt nokkur svipbrigði. Svo sagði hann grey kjáninn "merkilegt alveg hvað þið fimmtugu konurnar lítið vel út!" Svo klappa allir fyrir konunni hans fyrir vel unnið starf. Jeiii.

Af hvalnum er það að frétta að bumban stækkar eins og það sé enginn morgundagur. Ég er komin með 40 vikna kúlu segir læknirinn og vill fá að vita hverskonar ofvöxtur það er og ég fer því í vaxtarsónar á mið. Spennandi.
Ég er orðin ansi þung á mér og stekk ekki fram úr rúminu með dallasgreiðsluna eins og áður. Núna þarf ég nánast að biðja um aðstoð við að standa upp því ég er eins og afvelta skjaldbaka...skil ekki hvernig einstæðar fara að. Það er samt farið að styttast hryllilega mikið í herlegheitin og það er búið að ákveða að ég verð ekki látin ganga lengra en 39 vikur svo 22.sept verður líklega dagurinn. Nenni ekki að skrifa lengur, andleysi heitir það víst;)

miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Ég er farin að skammast mín fyrir að vera ekki nógu dugleg við að rækta samband við vini mína. Ég skelli skuldinni á vaxandi belg og skapsveiflur og inniveru sem belgnum fylgir.
Það er samt svo gaman að muna eftir skemmtilegum hlutum og muna að maður hefur alveg líka verið skemmtilegur. Ekki alltaf tikkandi hormónabomba sem bilast yfir því að gólfið sé ekki nógu vel skúrað;S

Ég fékk skemmtilega email sendingu um daginn. Það voru gamlar myndir sem ég vissi ekki hvort ég hefði viljað að hefðu týnst for good eða komist í mínar hendur sem þær gerðu. Verst að þær eru í mörgum höndum. Ég held að það sé alveg bókað mál að ég gæti aldrei orðið forseti. Ef maður ætlar að vera forseti þarftu að vera ansi flekklaus og þá má enginn eiga ósiðsamlegar myndir af þér. Ég á því miður of margar og ég held að margir aðrir eigi of margar.
Þessi var á meðal þeirra.



Ég verð semsagt aldrei forseti..

föstudagur, ágúst 10, 2007

Ætlaði að blogga..

...en hafði síðan ekkert að segja.





Alveg að koma afmæli

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Jæja huggulegheitin.
Ég er opinberlega í hreiðurgerð. Mér var sagt að þetta gæti gerst en ég hef aldrei trúað því. Var viss um að ef það væri hægt að vera í hreiðurgerð á msn þá myndi ég fá köllun ...annars ekki.
Ég verð að státa mig af því að vera húsmóðir í dag. Búin að þrífa ruslaskápinn (mamma sagði alltaf að þar gætirðu séð skítastandard heimilihaldarans) og er ég hæst ánægð með árangurinn. Ég er voða glöð yfir því samt að enginn sér mig á eldhúsgólfinu með plömmer, perrasvita stunur og tilbehör. Einu vitnin, me and bebe..

Svo var það ísskápurinn, veggirnir, skápahurðirnar og þá fattaði ég þetta allt saman, þetta var ekki mér að kenna og ég var ekki sú sem var að gera þetta heldur er hýsillinn að stjórna mér. Mikið er ég glöð að ég er ekki við stjórn lengur og enn glaðari yfir því að það eru ekki til fleiri Grey´s anatomy þættir. Þetta var að gleypa mig. Ég náði að horfa á síðasta þáttinn í gær (mútaði frumburðinum með heyrnatólum, stubbum og sveskjum) ég hef sjaldan bólgnað jafn mikið í framan. Ég er farin að lifa mig svo inn í þetta að ég var að verða veruleikafirrt. Valgerður læknanemi. Ég og George og izzy bestu vinir. Ég og Izzy saman með tannhvítunargóm að baka muffins á milli vakta. Gott að 4 serían er ekki komin.



Það var samt einn þáttur sem ég varð alveg lens yfir. Það var unglings stelpa sem var eins og vinkill í laginu. Hún var með sama sjúkdóm og ég er með, hryggskekkju sem veldur því að maður endar eins og samlokuskilti í laginu ef ekkert er gert.
Ég var svo heppin að vera Íslendingur og þar af leiðandi með frábært sjúkratryggingarbatterí á bakvið mig. Ég fékk skrúfur og nagla í bakið, missti rifbein og fékk stórt ör í skrappbókina fyrir.
Þetta tókst hjá mér en því miður er þetta ekki alltaf svona einfalt. Í þættinum mátti sjá þessa stúlku hálf skríða um því hún var ekki jafn heppin og ég. Ég hef einhvernvegin sjaldan leitt huganum að því hvernig hefði farið ef ég hefði ekki verið send í þessa aðgerð. Það var algjör tilviljun þannig séð því ég var búin að ganga á milli lækna sem sögðu mér annars vegar að anda í bréfpoka því ég væri bara ruglaður unglingur að feikaða eða að ég ætti bara að vera dugleg að synda. Sá sami læknir hafði látið mig vera í stoðbelti úr harðplasti 23 tíma á sólarhring og tvo hálftíma laus. Það var ekki huggulegt og enn síður þegar hann yppti öxlum og sagði að þetta hafði líklega ekki gert neitt gagn. Hefði líklega frekar viljað láta ljúga að mér og halda að þetta hafi þjónað tilgangi þennann 8 og 9 bekk sem ég þurfti að þrauka þetta. Hann sagði bara sorry ekkert meira fyrir þig og okkur að gera.

...Good memories:S

Sem betur fer lét ég ekki segjast og fór og fékk annað álit. Þá kom þetta allt í ljós. Hent á skurðborðið og negld saman eins og þyrluspaðinn í Einari Áskeli. Mikið er ég þakklát í dag. Fór bara eitthvað að velta þessu fyrir mér að þeta hefði getað farið allt á annann veg og ég í hjólastól með engin börn. Mikið er maður eitthvað fattlaus stundum á góðu hlutina.

En gott veður og ég ætla að halda áfram að þrífa. Næ bráðum í tannburstann til að skrúbba á milli skápa.
Farið varlega í umferðinni og sjáið nýju Michael Moore myndina og öðlist nýtt sjónarhorn á heilbrigðiskerfið okkar.

laugardagur, júlí 28, 2007

Jaaaæja


Kominn tími á blogg? Ég fékk skammir og tek það til greina. Ein og ein hræða enn að tékka svo það er eins gott að fullnægja bloggþörfum þeirra:P

Hvað get ég sagt...
Slit-tékk
Gyllinæð-tékk
Crocksskór-tékk
Háralitur sem loðir við allt nema hárið á mér-tékk...veggurinn er með fallegann háralit sem mig langaði í.

Á ég mér endurreisnarvon? Ég er allt það sem ég hef hæðst að í háa herrans, og þessu linnir ekki. Ég á eitt þrep eftir í kvennahlaupsbolinn en ég læt það nú vera. Held í restina af sæmdinni minni.

Þrátt fyrir óhugnalega upptalningu hér að ofan þá eru þetta búnar að vera yndislegar vikur að mestu. Barn og betri helmingur í fríi og ég fékk að hafa nóg fyrir stafni. Fórum í útilegu í húsi á hjólum, parkeruðum á Þingvöllum í rigningu. Það var huggulegt...þangað til batteríin í fartölvunum báðum kláruðust. Jebb við erum ekki upp á marga fiska í útivistinni en ég verð að segja ykkur að Gray´s anatomy eru skemmtilegir þættir.

Litla dnaið mitt er farið að spjalla við mig og er eins frábært og það gæti orðið, kannski þessvegna sem ég þrauka upptalningu númer 1 og 2 betur þar sem ég býst við að eiga annað eins í vændum. En frumburðurinn er frábær í alla staði.
Núna er að síga á seinasta hlutann á þessu ferli og ég er ansi ánægð bara með að vera með slit því þetta hélst inni allavega enn. Það er fram úr björtustu vonum. Það er allt búið að ganga eins og í sögu..þannig og ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Að væla yfir slitum er eitthvað sem væri kjánalegt þar sem dagar bikinis og magabola kvöddu á svipuðum tíma og Dr. Alban. Þannig að þetta skiptir ekki miklu. Ég hef líka verið einn furðulegur aðdáandi öra og finnst eitthvað heillandi við ör. Skemmtilegt að heyra líka allskonar sögur af allskonar örum. Mín eru samt að verða eins og skemmtileg skrappbók.

Fólk er byrjað að stoppa mig úti á götu og spyrja mig hvort ég sé búin að gleypa hval. Ég svara þessu yfirleitt á þann mátann að fólkið í Óla fjölskyldu fæðist flest með höfuð í yfirstærð og ég fái litlu um þetta ráðið. Þau eru bara svona. Rétt eins og gyðingar fengu stórt nef.
Ég semsagt nokkrum sentimetrum frá því að geta leigt mig út sem æfingabolta þar sem ég rúnast svo vel á öllum köntum að ég þarf ekki að nota fæturna eins og áður. "Lyfta og stíga" er úr sögunni, prikið sem rúllar mér af stað dugar fínt.
Ljósmóðirin horfði á mig um daginn og sagði "jæja elskuleg....finnst þér þú ekki hafa blómstrað svolítið síðustu vikur?"
Ég er búin að blása út og ekkert eins og nein blóm sem ég hef séð. Þetta var númer 2 í krúttskalanum þar sem hinn læknirinn minn notaði orðið bólstruð. Það er eitthvað sem ég kann alltaf vel að meta. En blómstra...ég veit ekki.
Hún er yndi og sagði mér varfærnislega að það þyrfti að senda mig í vaxtarsónar því höfuðlag föðurs dekkaði ekki sem útskýring á þessu flykki.
Ég fór og það er allt í lagi. Ég bíð bara spennt eftir að fá litla tröllið í hendurnar.