sunnudagur, júní 15, 2008

Labbakútur

tinna les "einn í heimi"

sætabaun

"ekki potímih" leikurinn

Glaða Matta

Endalaust glaðamatta

Glaðihrafn


Hissaglaðihrafn

grínarinn

Alvarlegi maðurinn

"mamma sjáðu ég er læknirinn"

Til að létta aðeins lundina, þá set ég inn myndir af fallegustu börnum heims.
"mamma ég elska hárið á þér, það er svo fallegt og svo góð lykt af því" ..er setning sem bræddi mig í spað. Hún grúfði sig í hárið og nuddaði sér uppúr því. Gullkornin eru farin að streyma og helst eitt á dag. Ég ætla að fara að vera duglegri við að skrá þetta hjá mér. Kem með best of fljótlega.

Mér er orða vant.



Ég spring inn í mér af reiði. Þetta er svo lítið brot af því sem er að gerast, svo lítið lítið brot.

sunnudagur, júní 08, 2008

Sakn

Tvennt grætti mig um helgina.

Ég horfði á lokaþátt Grey´s anatomy með skjálfta og ekka, blaut niður á bringu.



Hitt sem grætti mig var öllu mikilvægara. Sex and the city-the movie. Ég hef verið forfallin aðdáandi frá byrjun og kann marga þætti utanað. Ég hélt einusinni að ég væri Carrie, bara blönk í mun leiðinlegra landi. Þessi mynd stóðst algjörlega undir væntingum. Ég hló og grenjaði til skiptis. Ég var svo leið þegar mynd kláraðist því nú er ævintýrið alveg á enda. Farvel til vinkvenna minna 4.

Sunna og Kalli, innilegar hamingjuóskir með litla kútinn:*

laugardagur, júní 07, 2008

Besta heimildamynd allra tíma!



Vóvóvó, ef ég hef einhverntíman kallað einhvern tölvunjörð þá dreg ég það algjörlega til baka! Var að horfa á þessa rosalegu mynd og fólkið í henni er ekki eins og við. Núna trúi ég á Cruise og Travolta og á vísindakirkjuna í einu og öllu, því það eru geimverur á meðal vor. Hólyguacamoly! Þetta er tækniútgáfan af myndinni Stevie sem fékk mig til að afneita tveimur klukkutímum í lífi mínu því hún kollverpti hugmyndum mínum um mannkynið. (þó svo að helgarvinna mín 2003 hafi verið búin að gefa mér glimps)
Mæli með því að taka sér svona 90 mín eða svo í að góna á þessi fyrirbæri og elska þetta innst inni við beinið. Og eitt enn..ég mundi eftir því á meðan ég horfði að ég, sú sem harðneitaði því að hafa áhuga á nokkrum tölvuleik, þá viðurkennist það hér með að ég gat spilað appelsínugula donkeykong tölvuspilið mitt með lokuð augun. Kannski ég ætti að hringja í worldchampionscorekeeperinn. Damn að ég hafi ekki teipað þetta.

laugardagur, maí 31, 2008

nýja uppáhaldslagið mitt. Veit ekki afhverju ég var svona sein að fatta það.

fimmtudagur, maí 29, 2008

sumarskap


þriðjudagur, maí 27, 2008

Ég held að bloggið mitt sé svoldið ergiblogg. Ég skrifa oftar þegar ég verð foj af því ég hef vanið mig á að skrifa frá mér pirring í gegn um tíðina. Ég ól af mér gelgjuna á blogglausum tímum..blessunarlega. Núna þarf ég að venja mig af dagbókarpirri á bloggi. Með hækkandi sól verður skemmtilegra blogg. Lofa.

Lífið mitt kætir...


.."Samanthaa Who?" Loksins fann ég skemmtilega þætti og auðvitað kláraði ég seríuna á mettíma.Mig langar í meira.
Svo skil ég bara ekkert í draslinu hérna??

Elsku 107.

Tilkynni ykkur hér með að flutningar eru ekki lengur á döfinni. Við erum að reyna að fixa það sem er úr lagi þar sem margt kom upp á tíumín í flutninga. Við verðum áfram á Hagó, mörgum til mikillar ánægju býst ég við (lesist á vinsamlegann hátt;)) Það er margt samt sem angrar og leitum við leiða til að laga eitthvað af því. Það voru fleiri en við sem voru búnir að stóla á þessa flutninga og vonandi vonandi verður hægt að laga það. Okkur þykir það mjög miður.

Af öðru þá skil ég ekki hversvegna fólk á íslandi er svona tillitslaust. Fórum tvær huggulegar í strætó með barnavagnana okkar. (viðurkennist hér með að við nenntum ekki að labba) Drengurinn fattlausi sem sat í sætinu sem á að fara upp til að koma vögnunum fyrir sat sem fastast þrátt fyrir að það væru um 300 önnur sæti laus. Við komum okkur fyrir og tepptum gang í aftari hluta strætisvagnsins. Þó komu nokkrir leiðindafarþegar og ætluðust til að fá sæti þar sem þeir komust ekki. Stóðu og báðu okkur um að færa vagnana...enn og aftur þrátt fyrir önnur þjúhundruð sæti. Vonandi missið þið ekki svefn í nótt sem ekki fenguð sætin sem þið óskuðuð eftir. Feitu kerlingar og apakettir.

Ég vil koma á framfæri hrósi til tes og kaffis á laugaveginum fyrir framúrskarandi frappuchino með karamellu. Það er sálarmeðal og virkar mjög vel í frosti (næstum) og fárviðri í lokmaímánuði.

Hrós fær líka Casanova norðursins sem opnaði og hélt fyrir okkur hurð án þess að vera að fara inn. Takk fyrir að hjálpa okkur og strolling-unitinu út.

Snúllinn litli stendur og gerir "stór" með annari hendinni. Hann er alveg eins og brosandi frelsisstytta. Þvílíka arganskrútt.


Vút

þriðjudagur, maí 13, 2008

Loves it!

Já þannig var nú það heillin.

Síðan ég bloggaði síðast þá er ekki margt búið að gerast. Kannski spurning um að gefast bara upp á þessari vitleysu.
síðan ég bloggaði síðast er ég búin að...

..Dansa uppi á stólum og borðum á 11. Gott að gera það ekki oft. Kann betur við mig ekki uppi á stól:)
..gera ósköpin öll af líkamshlutum úr latexi.
..Tálga kökuspaða og skera næstum í sundur á mér þumalinn.
..klára skólann og fara í sumarfrí!
...Undirbúa flutninga yfir í Whitetrashcity;)
...fara og borða á Santa María. Maturinn góður, ódýr og gott starfsfólk. Ekki spilltu fyrir ókeypis gullhamrar sem voru ekki til að skemma kvöldið;) Mæli hiklaust með þessum stað sem fyrsta stopp á góðu föstudags og laugardagskvöldi.

Já þannig var nú það heillin.

föstudagur, apríl 25, 2008

verð eiginilega að monta mig líka



Óli setti þetta inn hjá sér og þá varð ég líka. Þetta er svona foreldrathing. Maður fær aldrei nóg af börnunum sínum. Rebekka skólasystir mín tók þessa fallegu mynd af Mosa litla. Hérna er slóðin þangað (vona að henni sé sama) :)

sunnudagur, apríl 06, 2008

Ætli lausnin á þessum vanda sé þá að gifta sig ekki?

laugardagur, apríl 05, 2008

Elsku vinir.

Jæja, ég er búin að vera að spá í því að blogga um þetta í smá tíma en núna fannst mér kominn tími til. Þannig standa málin að við erum að flytja. Ég viðurkenni það fúslega að það verður án efa mjööög furðulegt að yfirgefa borgarmörkin en það eru nokkrar góðar ástæður fyrir því.
Ég ætla að nefna hér nokkrar.

1. Hér í huggulegu íbúðinni okkar erum við í 80 fermetrum. Við erum fjögur. Ef við flytjum þá komum við líklega til að verða í 167 fermetrum. Það er gooott kaffi.

2. Börnin verða í sitthvoru herberginu, leikherbergi og svefnherbergi. Okkur finnst það frábært og þarna erum við með stórann plús fyrir börnin.

3. Við fáum aukavinnuherbergi. Vinnuherbergi sem ég get nýtt þar sem ég þarf að stunda mitt nám með meira rými en eitt skrifborð. Það er frábært.

4.Við borgum minna og það er fínt á meðan efnahagsástandið er að fara til fjandans og við getum borgað niður skuldir og látið húsnæðið okkar borga af sér sjálft í útleigu. Það er gott.

5. Hérna erum við með einn fermeter, já einn fermeter af geymslurými. Það er ekki gott, í nýju íbúðinni erum við með stóra geymslu. Það er frábært.

6. Óli byrjar í nýrri vinnu sem er innan hans námssviðs. Það verður gott fyrir hann og enn betra fyrir fólkið sem fær hann í vinnu;)

7. Það er mun betra leiksvæði þarna fyrir börn og færri hættur en hérna í vesturbænum. Matthildur og Nói Hrafn geta farið út á róló og maður þarf ekki að díla við sömu áhyggjurnar og hér. Auðvitað er enginn staður áhyggjulaus en þarna eru þónokkrar hættur sem minnka.

8. Þetta er akkurat engin áhætta fyrir okkur að gera þetta. Ef þetta er fúlt og við hötum rokið, fáum myglusvepp, koxum á bensínkostnaði og ljótum fjölbýlishúsum, einangrumst og leggjumst í þunglyndi eins og svo margir góðir vinir okkar eru búnir að maaaarg benda okkur á, þá förum við bara heim aftur á Hagó.

Mig langar til að biðja alla vinina okkar um að finna jákvæði punktana og koma brosandi til okkar í sunnudagsheimsókn í sumar og vonandi næstu 3 ár.


Bkv,

Vala

laugardagur, mars 29, 2008

oj bjakk

Ég var búin að gleyma því hvað það er ógeðslegt að fá gubbupest.

miðvikudagur, mars 26, 2008




Litli og stórinn minn

þriðjudagur, mars 25, 2008

Elsku kallinn, liggur þungt haldinn á spítala. Kom á mbl að þessi söngfugl hafi lent í bílslysi. Ég ásamt fleirum varð eitt spurningarmerki og ákvað að jútúba hann og datt niður á þetta gullmyndband. Vonandi hressist kallinn og gerir fleiri svona gullslagara og myndband í stíl.

þriðjudagur, mars 18, 2008

Mr. Chuck Jones

Ég er svo glöð yfir því hversu líkar við mæðgur erum. Núna er "Horton hears a Who" að byrja í bíói og Matthildur fær að eiga allar auglýsingarnar úr mogganum og safnar þeim. Hún kemur líka reglulega með tilkynninguna " þegar ég er búin með hlaupabólu þá ætla ég að fara að sjá Horton!"
Ég er algjörlega forfallinn Seuss aðdáandi og hlakka held ég meira til en Matthildur og svitna í lófunum af spenningi.
Það er eitthvað við þetta allt saman sem er svo magnað.
Ég hef svo oft hugsað um hvort að Jörðin sé bara ryk í skónum hjá einhverjum. Það er oft gott að vita að ég sé ekki ein um að hugsa þetta.
En annað sem hrífur mig er hann Chuck Jones. Þegar ég var lítil og horfði rosalega mikið á tomma og jenna þá fóru ákveðnar T&J myndir afskaplega í taugarnar á mér. Það var ákveðið tímabil sem þær myndir spunnu en það voru teikningar meistara Chuck Jones. Ég verð að segja að ég hálfskammast mín fyrir að hafa fundist hann leiðindateiknari sem barn en í dag er hann einn af mínum uppáhalds. Hann er líklega svona Maradonna í teiknimyndagerð. Svo strákarnir séu með;) Aka hönd Guðs. djók.
Nei allavega þá er hann líka svona mastermind sem kom mikið að teikningum Dr.Seuss tiknimyndanna (grinch) og teiknaði heil ósköpin af öðrum skemmtilegum teiknimyndu, Læt fylgja link með á gamlar teiknimyndir.




updeit fann bara leiðindarremix af þessum tomma og jenna þáttum sem mér fannst alveg off í den.
sjá hér:

sunnudagur, mars 16, 2008

Skóblæti


Ég er haldin skóblæti. Það er ekkert sem lætur mig kikna jafn mikið í hnjáliðunum og fallegir skór. Ég er svo veik.

Updeit- ég er hugfangin af 10 skóm, það eru 5 pör og verðmætið eru um og yfir 100.000. (Ísland bezt í heimi?)
Ég vildi óska þess að ég væri Imelda Marcos. Allavega skil ég hana vel. Til hamingju með sýknuna Melda mín, vonandi finnuru eitthvað fleira fallegt til að kaupa þér.

fimmtudagur, mars 13, 2008

Fór á þessa mynd í gær
Ég mæli með því að fleiri skelli sér á hana. Lofa því að það verða engin vonbrigði.

þriðjudagur, mars 11, 2008


Ég geeeeet ekki lært þetta. Leiðindapróf.

En aðrar fréttir eru þær að við flytjum í sumar. Nú fæ ég mér træbal trampstamp, blítsa hárið og kaupi mér mjaðmagallabuxur og drekk bríser á miðvikudögum. Ég er búin að fara í ljós svo þetta er ekki jafn tímafrekt. Keflavík here we come:S

En að allri kaldhæðni slepptri þá fáum við líklega íbúð á Keili og Óli er kominn með nýja vinnu, hann segir betur frá því öllu.
Ég hlakka svo til að fá aðstöðu, jafnvel aðstöðu til að fara loksins að teikna og mála og börnin fá leikpláss og geymsludótið okkar þarf ekki að eiga lengur heima í stofunni, kemst í stelpublak vonandi tvisvar í viku, komin með átaksvinkonu og vonandi dagmömmu. Sweet. Nú erum við fjölskylda og það þýðir ekki að gráta 101 og 107. Það bætist vonandi við nýr bíll í staðinn.

laugardagur, febrúar 23, 2008

Laugardagsleiðindi og stolið lag

já það er merkilegt hvað er hægt að halda kjánahrollinum í manni í langan tíma samfleytt. Blessað ríkissjónvarpið veit bara ekki hvað það á að gera við peningana sem nauðungaráskriftin gefur af sér og við sitjum uppi með þessa árlegu kjánabólur. Verð reyndar að segja að ég kaus Dr.spock því Óttarr bjargaði alveg kvöldinu.
Ég hlustaði síðan á Ragnheiði gröndal syngja þetta lag sem á að vera eftir hana Margréti Kristínu Sigurðardóttur aka Fabúlu.
http://http.ruv.straumar.is/static.ruv.is/evrovision/laugardagslogin/dontwakemeup.wma (verðið að kópera link, get ekki sett inn linka viva mac)
og hugsaði með mér...WTF þetta er bara alveg eins og þessi hérna snilldarslagari í leiðinlegri útsetningu.
Hlustiði á viðlagið!


Eru allir með gleymskugas í nebbanum?

miðvikudagur, febrúar 20, 2008

LOST og ellin

Merkilegt nokk þá eru þessir þættir enn í fullu fjöri. Þetta er eins og tannpína sem hverfur en kemur aftur og aftur. Ég er endalaust pirruð yfir þessu áhorfi en ég get bara ekki annað. Ekki að tannpína sé neitt fíkniefni fyrir mér en þessir þættir eru það samt. Ég get ekki látið þetta eiga sig fyrr en ég veit hvernig þetta fer allt saman. Það er svo merkilegt við þessa þætti að því meira sem maður horfir því minna veit maður. Ég veit semsagt mínus 4 seríur sinnum 2. Og þar hafið þið mína stærðfræði;) Núna er ég semsagt búin að horfa á 3 þætti í nýjustu seríunni..og jú það er margt að gerast og nei ég veit ekkert hvað er að gerast en...úff bara. Nú er ég komin aftur með áðurnefnda tannpínu því þetta hverfur ekkert heldur þarf ég að eyða tíma mínum í þetta núna vikulega.

En talandi um góða þætti (kannski ekki lost og kannski jú) þá eru dönsku þættirnir glæpurinn (forbrydelse ehh ehh forbrydelsen eða et? Danskan mín fer þverrandi)En þessir þættir eru stórkostlegir. Klár stúlka eins og ég er ekki að sjá í gegn um þetta eða vera nálægt því að vita hver morðinginn er. Við hjúin segjum reglulega "það er svooo pooottþétt þessi" og aldrei erum við að tala um sömu manneskjuna. Eins gott að við völdum okkur annað starf en glæparannsóknarteymi, því við myndum sökka sem eitt slíkt. Já og talandi um að vera orðin svo gömul að vera farin að horfa á glæpaþætti á rúv og í þokkabót danska (þetta var mælikvarðinn minn á elli þegar ég var lítil, frænka mín horfði á alla skandinavíska þætti á rúv og ég hugsaði með mér, þegar ég verð svona gömul þá verður sjónvarpssmekkurinn minn enn Parker lewis og Vistaskipti og þar fyrir utan ætla ég að vera ógeðslega smart mamma og vera bara í levi´s 501 og stuttermabolum innanundir levi´s boli) Onei, hér er ég talandi um dagskrána á rúv og samt með stöð 2. En klown er það fyndnasta sem ég hef séð. Elskann.
Jæja yfir og út. Vonandi fer næsti lost þáttur að koma.

þriðjudagur, febrúar 19, 2008

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Þá er það taka 3 af veikindum, Nói var að lagast af RS-num en um leið og það kom í lag eftir 5 og tæplega hálfa viku þá kom bakslag og hann er að veikast aftur. Við förum til læknisins aftur á morgun til að sjá hvort það sé eitthvað nýtt eða hvort að sýklalyfin hafi ekki virkað fyrir eyrun hans Mosa litla.
En þar fyrir utan er ekki mikið að frétta, ég minnkaði skólann hjá mér allverulega og er því bara að taka 6 einingar núna. Það er mikill munur þar sem veikindaálagið var alveg nóg og ég var komin með krónískann hnút í magann því ég gat lítið mætt og þar fyrir utan er ekki mikill svefn í veikindunum. Svo til að setja berið á rjómann þá er ég orðin lasin líka. Vei.
En febrúar klárast og líka mars og þá er farið að styttast í sumarið. Ég hlakka rosalega til sumars og vonandi getum við bæði verið í fríi og leikið við börnin okkar. Það er kærkomið frí hjá okkur báðum.

Við erum enn ekki búin að gefa barninu nafn í þjóðskrá þó hann gangist undir nafninu Nói Hrafn. Ekki að því verði breytt neitt en það þarf víst að koma nafninu á hagstofuna og hann heitir því enn bara Drengur Ólafsson í kerfinu. Við ætlum að fara að bæta úr þessu og skíra hann fljótlega en páskarnir koma þar sterklega til greina. Það er ekki annað hægt þar sem við förum að næla okkur í dagsektir fyrir að skerða rétt barns á nafni. En það verður nú sem betur fer ekki fyrr en eftir 6 mánuðina.

Við erum eins og áður var sagt mikið búin að hugsa um að færa okkur á stúdentagarðana á Vellinum gamla. Ég held að það sé fín lausn í bili því húsnæðið sprakk fyrir svoldlu síðan og þrengir meira og meira með hverjum deginum. Ég skil enganvegin hvernig fólk fór að þessu í gamla daga með 20 stykki af börnum í einu herbergi og annað eins í hjónaherberginu. Ég er alveg lens. Þá kemur inn þessi nægjusemi sem þrífst ekki í þessu þjóðfelagi, hvað þá á þessu heimili þar sem mamman er jafn sjúk dótið og börnin. Við fáum samt ekki að sækja um fyrr en í mars held ég og þá fáum við að vita hvort það verði bætt við íbúðum eður ei. Það hlýtur samt að vera því það eru billjón íbúðir þarna sem standa tómar og við vildum gjarnan fá eina. Það er samt rosalega erfitt að hugsa til þess að fara til Keflavíkur. Ég held að þetta sé einn af fáum stöðum á landinu sem ég hef svarið þess eið að flytja aldrei til. Má vel vera að þetta sé einhver púkaháttur í mér en þetta bæjarfélag hefur mér aldrei fundist aðlaðandi að neinu leiti. Vonandi að Völlurinn sé ekki sami hnakkabærinn,

Þetta er kannski ekki sú mest upplífgandi færslan en til að hressa ykkur og mig þá verð ég að setja þessa mynd inn.


Það er einhver snillingur sem var að búa þetta til og mér til mikillar gleði er ég loksins loksins að komast í animationkúrsinn langþráða í skólanum. Byrjar á morgun og JEI ég hlakka til:)

mánudagur, febrúar 11, 2008

laugardagur, febrúar 02, 2008

sunnudagur, janúar 27, 2008



Matthildur fór á skauta í dag. Mikið sem mér fannst hún vera stór, og mikið sem mér fannst hún lítil á svellinu. Mömmunördið var ekki ólympiuefni á skautunum en hélt sér þó á fótunum. Varð líka að gera það því barnið þurfti að treysta á skassið svo hún dytti ekki líka. Við vorum eflaust mjög skrautlegar að sjá.

Mikið er annars erfitt að vera á skautum. Eftir að ég varð stór..eða svona um það bil stór þá er ég að upplifa allt öðruvísi og þar á meðal að hreyfing er ekki jafn easypeasy og mér fannst. Nokkur atriði sem ég hef tekið eftir. Ég get ekki a) farið á skauta án þess að fá krampa í fætur og kálfa, b) farið á skíði án þess að finnast fæturnir vera að gefa sig og hnéin í ljósum logum, c) að standa á höndum er ekkert gamanmál. Ég klúðraði næstum í mér mænunni þegar ég hugsaði sem svo að þetta væri bara að halda uppi kílóunum mínum með höndunum. Reiknaði kílóafjöldann síðan 1992 og sá að það voru ansi stór mistök. d) svona frekar augljóst eftir lið c að ég get ekki lengur farið í flik flak. Jább einusinni var sú tíðin að ég gat stokkið afturfyrir mig eins og ekkert væri auðveldara, núna er kollhnís djarfasti leikurinn minn..sem ég btw get ekki heldur. Og mér til málsbóta sá ég það í dag að Óli getur það ekki heldur. Mér er stórlétt.


Læt fylgja mynd af lasarusinum líka

laugardagur, janúar 26, 2008

Aðgerð F

Við fórum hópur í aðgerð F í gær og flísalögðum í skuggahverfinu. Það vakti mismikla ánægju íbúa en margir voru nokkuð ánægðir með framtakið. Lögreglan kom of seint svo það voru engir eftirmálar. Allt gekk eins og í sögu og mun betur en við þorðum að vona. Hópurinn var allavega mjög ánægður með vel unnið verk (verknað)
Þið getið séð eitthvað af því í fréttablaðinu í dag. Mikið var samt gaman að sjá þetta ljótaljóta hús pínulítið fínt.

Waitress



Eins og góðum hjúum sæmir þá tókum við janúarföstudagskvöld uppi í sófa með ostaköku og tvær skeiðar að vopni og horfðum á Waitress. Ég verð að segja að ostakakan var bara til að toppa þetta. Ég hélt að ég væri að pína Óla greyið í svona klassískt chickflick og sá það reyndar á svipnum á þessari elsku að Jessie james var aðeins hærra á óskalistanum. En þessi mynd er stórgóð. Ég ætlaði að knúsa skjáinn þegar ég sá síðan gamla vin minn hann Matlock. Ég var einmitt að velta því fyrir mér um daginn hvort að hann væri lífs eða liðinn. Hann er eitt það mest likable gamalmenni sem ég veit um, að meðtöldum gömlu hjónunum í Batteries not included.
Ekki láta Felicity hræða ykkur því hún er ekki sama óþolandi fullkomlega leiðinlega Felicity og í þáttunum. Þarna á hún í alvöru tilvistarkreppu, ekki bara af því að einkunnin hennar á stærðfræðiprófinu var 10+ í stað 10++. Anywho góð mynd. Ég mæli samt með ostaköku með henni því það er fátt annað en kökur sem mann langar að borða í þessari amerísku pæ mynd.

Samantektin er því Juno very næs og waitress very næs. Mynd morgundagsins verður vonandi Baby Mama með kvendinu úr 30 rock því Hollywood er með óléttur á heilanum.

þriðjudagur, janúar 22, 2008

þetta er merkilegt. Þeir vildu ekki pota Laxnesinu niður á Þingvöllum. Bobby var svalari að því leytinu að hann var kani. Það er líka töff að vera rasisti a íslandi í dag, hvað þá kani og rasisti. Leiðinlegt að hann ákvað sjálfur hvar hann vildi láta pota sér.
Við ættum kannski núna að fá Sæma til að bjarga Gary Glitter úr fangelsi fyrst Bobby er dead?

Hvernig gengur svo aramotaatakið?

Ég get ekki orða bundist hvað svokallað lýðræði er ekki að virka á þessu landi. Það virðist engu máli skipta hver kýs hvað því það hefur ekkert að segja með neina stjórn. Hversu margir kusu frjálslynda í síðustu kosninum, "réttupphend"?!
Bara sleppa þessu. Kosningar eru bara til að láta okkur finnast við hafa eitthvað að segja um hvernig stjórninni er háttað. við erum kjánar að halda að það skipti máli.
óheiðarleiki er víst lykilorðið sem þarf að hafa að leiðarljósi til að komast áfram í pólitík hér. Óheiðarlegu leynimakkararnir fá alltaf væna umbun þegar allt springur. Er þetta það fordæmi sem við viljum veita komandi kynslóð í pólitík?
Og um leið langar mig að óska syni Davíðs hrokkinhaus til hamingju með stöðuna og í leið óska honum til hamingju með að hafa flutt að heiman. Þarf hann að vera alltaf svona hissa á svipinn?
Aldrei í lífinu skal ég aftur efast um að sjálfstæðisflokkurinn væri annað en uppaklíka og svínarí.

laugardagur, janúar 05, 2008

gledilegt nytt ar!




Jæja það er komið, árið sem ég verð 28. Þá eru það bara 2 eftir og talan er komin í 30. þegar ég var minni þá hélt ég að ég yrði orðin gömul kona þegar ég yrði þrítug. Svo er nú aldeilis ekki.
En þessi 2 ungu ár sem ég á eftir ætla ég að nýta vel. Ég verð nú samt að segja strax frá því að betri helmingurinn minn er orðinn 30 og bloggóska ég honum til hamingju. Er nú löngu búin að því venjulega.

Það er víst eitthvað trend hjá öllum að gera upp árið á blogginu sínu og ég er að spá í hvort að ég ætti að gera það sama.

janúar- komst að því að ég var kona ekki einsömul og var það þrælfyndið.

Frá janúar og fram í lok september - var kyrrsett í Rvk og bannað að fara út fyrir borgarmörk. Ég mátti svo ekki vinna á þessum tíma svo ég veit ekki alveg hvað ég á að setja í uppgjörið þarna á milli.

Sept- þá kom hann Nói minn í heiminn og breytti öllu eins og Matta gerði líka fyrir 2 árum. Það var vægast sagt frábært. Ætli þetta sé því ekki bara besta árið og ekki meira um það að segja.

Ég gæti farið út í tónlistarár eða pólitískt ár eða slúðurár eða...en ég læt fagmenn um slíka hluti. Thumbs up fyrir líðandi og komandi ári.

Elsku vinir, takk fyrir liðið og tökum nýja árinu fagnandi. Þetta verður besta árið hingað til.

sunnudagur, desember 16, 2007

Alveg er þetta dæmigert, deadline og skil á morgun, ég ákveð að fara að taka þvottamaraþon og blogga á sama kvöldi. Líklega tengja fleiri við dugnað af þessu tagi svona í lok annar. Annars gengur allt glymrandi hér. Matthildur að breytast í mjög svo sætann einræðisherra og Nói brosir út í annað.

Það eru allir að tala um Siðmennt í dag. Það er víst svona með og á móti lið og maður má víst ekki spila með báðum liðum frekar en vanalega. Ég sest því hjá siðmenntarfólki þrátt fyrir að vera "sannkristin" hvað sem það nú þýðir.

EEEEeeeen ....ég á mér beinagrindur í skápnum.

Fáir vita að ég var mjög aktíf í kirkjustarfi frá blautu barnsbeini. Ég byrjaði í sunnudagaskólanum í Neskirkju á þarsíðasta áratug og færði mig síðan norður í Glerárkirkjuna. Sunnudagaskólinn þar var mjög fínn líka með Pálma prest við altarið. Eftir nokkur ár og gott Jesúmyndasafn í bókinni grænu þá var ég komin með aldur til að byrja í kirkjukórnum. Það var ansi fínt bara.
Ég fékk svo að vera sögumaður oftar en einusinni í jólamessuni því það er ekki mikið varið í guðspjallið án leiksýningar. Ég hefði alveg verið svosum til í að vera María, en hún átti enga línu, sögumaðurinn átti þær allar. Svo þar var mitt hlutverk komið.
Ég stækkaði síðan aðeins meira og byrjaði síðan í æskulýðssöfnuði Glerárkirkju sem var frábær félagsskapur. Ég kynntist mörgum skemmtilegum krökkum og má þar auðvitað nefna Jónsa karl sem oft var í svörtum fötum. Ég held að það sé eina selebið sem ég ég get sagt að ég þekki. kannski ekki svo mikið lengur samt.
Ég fór á landsmót og ég kynntist mörgun mjög trúuðum krökkum og þeir voru sko aldeilis ekkert leiðinlegri en aðrir. Ég þreifaði mig mikið áfram í trúmálum á þessum tíma. Ég mætti á nokkrar samkomur í Filadelfiu og svo má alveg halda áfram að telja.
Ég fann mig síðan ekki alveg í því og hélt mér bara við þessa klassísku krakkatrú og að boðskapurinn væri bara fínn. Ég skíri börnin mín (eitt eftir reyndar) og vil að þau fái svipað trúaruppeldi og ég. Ég leyfi þeim síðar alveg að ráða hvað þau vilja gera í sínum trúmálum og mega segja sig úr þjóðkirkjunni ef þau kjósa svo. Þangað til verða þau skráð þar. Þau fá að byrja á sama stað og ég og fara í sunnudagaskóla í Neskirkju, kannski ég græði fleiri jesúmyndir í safnið;)

En svo ég haldi nú áfram þá verð ég að viðurkenna að trú mín hefur farið dalandi. Það hefur margt orðið til þess að mér fannst ég þurfa að viðurkenna fyrir sjálfri mér að þetta sé allt bölvuð vitleysa og maður ætti að láta svona munnmælasögur bara eiga heima í bók og spá ekki meira í henni nema þegar ég fæ löngum til að lesa skondna skálsögu um gráðuga konu sem var búin til úr rifbeini, epli, vondan vondan snák og hvernig maður eigi að grýta hórur. Auðvitað var margt annað fallegt í þessari bók, en mér reynist erfitt að trúa meirihlutanum af þessu enda gamalt rit og ég veit hvernig hvísluleikir enda yfirleitt.
Það er samt eitthvað sem heldur í mig og ég læt skíra börnin mín svona....til öryggis. (auðvitað er ég ekki einráða í þessu samt) Það er skondið kannski en ég veit ekki hvað það er, mér finnst að þau verði að fá að hafa trú til að grípa í ef eitthvað gerist. Sumum finnst það gott og mér finnst fínt ef þau geta notfært sér það. Ég gerði það reyndar ekki í mínum áföllum í lífinu, en margir í kringum mig hafa gert það og haldið geðheilsuni þannig. Líklega er það bara málið að maður þurfi að hafa eitthvað sem segir manni að allt verði í lagi, það sé einhver sem hafi control á hlutunum þó maður sjai það ekki. Hvað er betra en svoleiðis huggun?
En já..ég var að tala um siðmennt.
Trúmál eru mjög persónuleg. Ég vil fá að stjórna því hvaða trú ég boða börnum mínum þangað til þau ákveða annað.
Trúboð eiga ekki heima í leikskólum eða grunnskólum. Tilhvers? Það ríkir trúfrelsi á Íslandi, ekki meirihlutinn ræður.

Voðalega get ég blaðrað. Það er líklega bara því ég á að vera að gera annað. Adios, það verður allnighter hér á bæ.

föstudagur, desember 07, 2007

Umsokn um frest




Kæri G. H. Haarde og Biskup.
Ég rita þetta bréf sem námsmaður á framfæri Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort það sé möguleiki á því að færa jólin fram í janúar fyrir námsmenn.
Það gefst lítill tími til jólabaksturs, kortagerðar, kransaskreytinga og gjafainnkaupa svona í þessum prófamánuði ..og auðvitað bænahalds.
það virðist líka mun eðlilegra sökum framfærsluáætlana hjá gjafmildum sjóðnum að geta haldið blessuð jólin í útsölumánuði. Janúar er líka frekar þungur og dimmur mánuður og þetta myndi stytta biðina eftir vorinu, síðan gerist ekkert spennandi í janúar hvort sem er.
Er þetta mögulegt?

Kærar þakkir.

Vala og eflaust fleiri.

mánudagur, desember 03, 2007

desember kominn


Desember genginn í garð og lífið gengur sinn vanagang...að mestu. Dagarnir eru nú sérstakir margir hverjir og er það yfirleitt Matthildi að þakka.
Dagurinn í dag byrjaði skemmtilega en mér var boðin góður dagur og beðið um habbagoj. (hafragrautur á íslensku)
Eftir að ég komst að því að engin leið væri fyrir mig að opna augun sárbændi ég betri helminginn um að sinna þessari bón hennar og fara með henni fram. Auðvitað sinnti hann því og eftir 2 mín heyri ég andköf. "klukkan er hálf fimm!" Matthildi var nokk sama og komin á fætur dagurinn hennar var hafinn. Óli náði að semja við stýrið úr hafragrauti í skyr og því fljótlegra að múta henni aftur upp í rúm. Hún var orðin lasin. Ekki af því að hún vaknaði hálf fimm, heldur af því að hún var komin með hita. Það þyrfti ekki að virkja neitt á þessu landi nema barnið mitt nokkrum sinnum á ári til að ná fram allri þeirri varmaorku sem þarf til að knyja sveitafélög Gullbringusýslu í 100 ár. Þetta er engu líkt þegar hún er með hita. Það sem gerði þennan dag líka einstakann er það að hún fékk 7 nærbuxur í pakka frá ömmu og afa sem voru í útlöndum. Planið var að lata hana hætta með bleyju á næstu mánuðum,og þetta var startið. Eftir að hún sá þessar eðalbrækur sem hún var ekki alveg viss hvernig ætti að klæðast. þá var hún tilbúin að eigin sögn. Hún er búin að útbúa fínt skot inni á baði við hliðina á klósettinu og inniheldur afdrepið bláan kopp, töfrakúluna, Emmubók og gott dass af huggulegheitum.
Þar sat hún á 2 mín fresti í kvöld...í 3 tima og afrekaði ýmislegt á þeim tíma. Öskur og hamingjuóp frá barni og svo foreldrum á ca. hálftímafresti. Já það var nóg að gera. Bteyttir tímar semsagt, bæði fyrir Matthildi og mig...
Núna liggur þessi elska hrjótandi í rúminu með bleyju í náttbuxum og nærbuxunum fínu úthverfum utanyfir allt saman.

föstudagur, nóvember 23, 2007


Nói minn er svo huggulegur. Takk Kiddi T;)

mánudagur, nóvember 19, 2007

Síðasta færsla fór víst fyrir brjóstið á mörgun og fékk ég svona hint frá blogger að þetta væri questionable...Mér fannst þessi gaur bara eiga heiður skilinn fyrir hugmyndaflugið og ég gat ekki annað en sett þessa mynd inn. Svo erum við hjónin greinilega með sérstakann húmor þar sem við hlógum að þessu í góðar 30 mín. Kannski var það bara svefngalsinn í okkur.
Vona að þið sem ekki höfðuð húmor fyrir þessu náið að jafna ykkur á þessu fyrir jól:)

laugardagur, nóvember 17, 2007

Husmaedraorlof?


Vinkona mín er þriggja barna móðir. Hún stakk upp á því að fara á vísatripp borga ekki reikninginn og fá sér langþráð húsmæðraorlof í kvennafangelsinu. Góð hugmynd og ég sagði henni að go for it. Hún þarf svo á því að halda.

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Í skolanum

Kennarinn; "þessi rauða fígúra er eins og tákn einhvers kynferðislegs, svona kynferðislegur undirtónn. Mjaðmirnar svona skakkar og liturinn....hvað segið þið?" "Það er einhversskonar spenna þarna í henni, svona rosalega mikilfengleg, æpir á eitthvað svona eins og fullnægingu"

Listneminn; "já þetta er mamma"

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Það er búið að vera mikið að gera hér í bæ. Törn í skólanum, og törn heima að læra á nýja systemið. Þau eru voða góð, en það þarf að samræma. Það er samt alveg að koma en í nótt td. þá var samræmingin alveg í mínus. Hann vaknaði..hún svaf, hann sofnaði...hann vaknaði. Ég svaf því ekki mikið þessa nótt, en það er bara alls ekkert alltaf í boði. Gæti verið svo miklu verra.

Ég fór í foreldraviðtal í dag. Mér hefur hingað til fundist foreldraviðtöl vera fullorðinsathöfn og aldrei inklúdað mig í svoleiðis boð. Nú varð breyting á og ef einhver hefur talað um fermingar sem eitthvað svona sem kemur manni í fullorðinstölu þá er það bara litlibróðir foreldraviðtals. Núna er ég semsagt orðin fulllorðin á mínum eigin mælikvarða.
úff já það tekur á.
Merkilegt hvað ég get orðið ofuráhugasöm um ýmislegt. Átti samræður við eina vinkonu mína um daginn og kom það upp úr kafinu að við erum báðar haldnar ofuráhuga á óléttum og fæðingum. Fáum báðar svona sting í mallann ef einhver er að fara að fæða og spennumst allar upp þegar við heyrum af einhverri óléttri. Ég hef mjög gaman af því að lesa fæðingasögur kvenna sem hefði verið miklu meira en óhugsandi fyrir ekki svo löngu síðan. Ég held samt að það sé skemmtilegast þegar það kemur eitthvað smá uppá í fæðingunni og allt fer vel að lokum. Svoldið eins og gamlir reyfarar. Ég þarf kannski að leita mér aðstoðar. (Og taka mörtu með;))

Ætla að láta fylgja með mynd af okkur huggulegu kvendunum á síðustu metrunum í "ástandinu" og óska Kötu og Krissa í leiðinni til hamingju með hinn ofurkrúttlega Erling Snæ Nóavin.

þriðjudagur, október 30, 2007

Tiu litlir negrastrakar

Ég gleðst yfir því að sjá að fleiri séu sömu skoðunar og við hjú, hvað varðar endurútgáfu þessarar bókar. Ég gleðst yfir því að ég sé í þessum 12 prósentum sem stendur ekki á sama að þessi fordómafulla og tilgangslausa bók eigi endurkomu á íslensk heimili. Upphefjum Mugg heldur með endurútgáfu á Dimmalimm.
Ég vona að eiganda þessarar greinar sé sama þó ég linki á hana en ég vil endilega benda fólki á að lesa þetta;
http://b2.is/?sida=tengill&id=260114

Að tala um þessa bók sem menningarverðmæti finnst mér til háborinnar skammar fyrir "vel upplýsta" þjóð.

sunnudagur, október 28, 2007


Litli strákurinn okkar er kominn með nafn. Hann heitir Nói Hrafn.

Þar fyrir utan þá er búið að vera mikið að gera. Skólinn að drekkja mér ..eða ég sjálf því atburðir síðasta mánaðar tók tíma frá verkefnavinnu sem ég þarf að skila af mér eftir nokkra daga.
Ég fór samt í leikhús í gær, sem telst til tíðinda..líklega í þriðja skipti frá upphafi. Ef frá eru talin 2 barnaleikrit á þarsíðasta áratug. Ég verð að viðurkenna að ég var að tárast í endann, en ég held að dramatík og tónar Nick Cave hafi farið alveg með mig. Mæli með þessi leikriti, Hamskipti þó ekki nema bara vegna tónlistar og uppsetningu.
Já og Garðar og Sara, til hamingju með giftinguna!

fimmtudagur, október 18, 2007

Leiðindaveður....skítaveður.
Grár dagur með rigningu og þreytu. Ég verð svoooo þreytt.
Dóttir mín var að reyna að setja heimatilbúið tattú í andlitið á bróður sínum. Því var bjargað á síðustu stundu.

þriðjudagur, október 16, 2007


Suma daga þá hljómar allt eins og það sé að fara til fjandans. Talandi um að ólían sé að klárast, heimskreppa í aðsigi, glóbal warming sé að fara að drekkja okkur eða steikja, vindurinn og kuldinn hérna farinn að nísta inn að beini, myrkrið skollið á, bíllinn bilaður, meikið kláraðist og fataskápurinn er tómur (nei kannski ekki að bera þetta saman við heimskreppuna en má alvg bæta því við).
Aftur á móti þá getur ég líka snúið þessu við og séð að það er frábært hér þrátt fyrir kulda og bilaðann bíl. Börnin eru snillingar af Guðs náð. Ylja mér í kuldanum ásamt gullmanninum. Sjaldan betra að eiga huggulega fjölskyldu í kulda og myrkri og kúra öll saman í sófanum mjúka, síðan gefur það manni tilefni til að fara að kafa í kössum eftir ljósaseríunum og blása af þeim rykið. Fitan lekur af mér þegar ég neyðist til að hreyfa á mér rassinn og labba með vagninn á undan mér og hreina loftið gefur manni smá búst. Svo kannski verður bíllinn bara bilaður í smá stund í viðbót.
Þar sem myrkrið er mikið þá þarf maður varla að mála sig lengur þar sem maður sést lítið. Svo er maður líka í svo stórri úlpu núna að fötin innanundir skipta ekki máli. Kannski er þetta ekki svo slæmt;)
Way to live Pollyana....

föstudagur, október 12, 2007

Ég klárlega verð að vera ólétt í brúðkaupinu mínu...

....þó ekki nema bara til að geta verið í þessari múnderingu.

huggulega folkið;)

fimmtudagur, október 11, 2007

Gott kaffi

Drengur er fæddur, heilbrigður og huggulegur þann 25 september. Það er því allt frábært að frétta héðan. Skólinn kominn á fullt aftur, ég er hætt að vagga og 10 kg léttari, frumburðurinn 29 númerum stærri og rosalega greindur í krossgátusmíðum.
Borgarstjórnin er fallin og Dagur B Plebbgertson að fara að taka við. Hrokkinhærði fabio. Mér líst vel á, vonandi bannar hann sölu á volgum drykkjum í Ríkinu.
Ég sá þetta quiz á síðunni hennar Nínu sys og ákvað að prófa, niðurstöður koma ekki á óvart.




You're The Hitchhiker's Guide to the Galaxy!

by Douglas Adams

Considered by many to be one of the funniest people around, you are
quite an entertainer. You've also traveled to the far reaches of what you deem possible,
often confused and unsure of yourself. Life continues to jostle you around like a marble,
but it's shown you so much of the world that you don't care. Wacky adventures continue to
lie ahead. Your favorite number is 42.



Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.

sunnudagur, ágúst 26, 2007

Bumban fer ekki minnkandi en svefninn gerir það. Því sit ég hér geispandi og bloggandi. Ég er ekki búin að hafa mikið fyrir stafni annað en að fara reglulega á te og kaffi, kaupa mér frappa með karamellu og síðan horfa á afspyrnulélegt sjónvarpsefni. Það er alveg merkilegt hvernig verið er að reyna að murrka úr manni geðheilsu með endursýningum og b þáttum á skjá einum. Kosturinn er samt sá að maður er ekki að borga fyrir það. Stöð tvö rukkar hinsvegar almúgann um hendur og lífeyri fyrir svipað gæðaefni. Ég er svo fegin að hafa sagt þessu upp...þrátt fyrir að hugsa til Opruh með söknuði.

Ég viðurkenni það fúslega að ég horfi á allt svona auðmelt kerlingaefni ef það er í boði. Dr,Phil á samt ekki alveg upp á pallborðið hjá mér. Hann er með svo hræðilegann kæk, blikkar augunum hryllilega fast í gríð og erg svo ég dett út og hætti að heyra um hvað þátturinn snýst og fer að nudda augun mín. Svo er konan hans algjör hörmung. Hann er alltaf að finna einhver verkefni handa henni til að sinna eins og taka viðtal við cher og e-ð. Þær deila bara einu sameiginlegu og þa er að þær eru of strekktar til að geta sýnt nokkur svipbrigði. Svo sagði hann grey kjáninn "merkilegt alveg hvað þið fimmtugu konurnar lítið vel út!" Svo klappa allir fyrir konunni hans fyrir vel unnið starf. Jeiii.

Af hvalnum er það að frétta að bumban stækkar eins og það sé enginn morgundagur. Ég er komin með 40 vikna kúlu segir læknirinn og vill fá að vita hverskonar ofvöxtur það er og ég fer því í vaxtarsónar á mið. Spennandi.
Ég er orðin ansi þung á mér og stekk ekki fram úr rúminu með dallasgreiðsluna eins og áður. Núna þarf ég nánast að biðja um aðstoð við að standa upp því ég er eins og afvelta skjaldbaka...skil ekki hvernig einstæðar fara að. Það er samt farið að styttast hryllilega mikið í herlegheitin og það er búið að ákveða að ég verð ekki látin ganga lengra en 39 vikur svo 22.sept verður líklega dagurinn. Nenni ekki að skrifa lengur, andleysi heitir það víst;)

miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Ég er farin að skammast mín fyrir að vera ekki nógu dugleg við að rækta samband við vini mína. Ég skelli skuldinni á vaxandi belg og skapsveiflur og inniveru sem belgnum fylgir.
Það er samt svo gaman að muna eftir skemmtilegum hlutum og muna að maður hefur alveg líka verið skemmtilegur. Ekki alltaf tikkandi hormónabomba sem bilast yfir því að gólfið sé ekki nógu vel skúrað;S

Ég fékk skemmtilega email sendingu um daginn. Það voru gamlar myndir sem ég vissi ekki hvort ég hefði viljað að hefðu týnst for good eða komist í mínar hendur sem þær gerðu. Verst að þær eru í mörgum höndum. Ég held að það sé alveg bókað mál að ég gæti aldrei orðið forseti. Ef maður ætlar að vera forseti þarftu að vera ansi flekklaus og þá má enginn eiga ósiðsamlegar myndir af þér. Ég á því miður of margar og ég held að margir aðrir eigi of margar.
Þessi var á meðal þeirra.



Ég verð semsagt aldrei forseti..

föstudagur, ágúst 10, 2007

Ætlaði að blogga..

...en hafði síðan ekkert að segja.





Alveg að koma afmæli

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Jæja huggulegheitin.
Ég er opinberlega í hreiðurgerð. Mér var sagt að þetta gæti gerst en ég hef aldrei trúað því. Var viss um að ef það væri hægt að vera í hreiðurgerð á msn þá myndi ég fá köllun ...annars ekki.
Ég verð að státa mig af því að vera húsmóðir í dag. Búin að þrífa ruslaskápinn (mamma sagði alltaf að þar gætirðu séð skítastandard heimilihaldarans) og er ég hæst ánægð með árangurinn. Ég er voða glöð yfir því samt að enginn sér mig á eldhúsgólfinu með plömmer, perrasvita stunur og tilbehör. Einu vitnin, me and bebe..

Svo var það ísskápurinn, veggirnir, skápahurðirnar og þá fattaði ég þetta allt saman, þetta var ekki mér að kenna og ég var ekki sú sem var að gera þetta heldur er hýsillinn að stjórna mér. Mikið er ég glöð að ég er ekki við stjórn lengur og enn glaðari yfir því að það eru ekki til fleiri Grey´s anatomy þættir. Þetta var að gleypa mig. Ég náði að horfa á síðasta þáttinn í gær (mútaði frumburðinum með heyrnatólum, stubbum og sveskjum) ég hef sjaldan bólgnað jafn mikið í framan. Ég er farin að lifa mig svo inn í þetta að ég var að verða veruleikafirrt. Valgerður læknanemi. Ég og George og izzy bestu vinir. Ég og Izzy saman með tannhvítunargóm að baka muffins á milli vakta. Gott að 4 serían er ekki komin.



Það var samt einn þáttur sem ég varð alveg lens yfir. Það var unglings stelpa sem var eins og vinkill í laginu. Hún var með sama sjúkdóm og ég er með, hryggskekkju sem veldur því að maður endar eins og samlokuskilti í laginu ef ekkert er gert.
Ég var svo heppin að vera Íslendingur og þar af leiðandi með frábært sjúkratryggingarbatterí á bakvið mig. Ég fékk skrúfur og nagla í bakið, missti rifbein og fékk stórt ör í skrappbókina fyrir.
Þetta tókst hjá mér en því miður er þetta ekki alltaf svona einfalt. Í þættinum mátti sjá þessa stúlku hálf skríða um því hún var ekki jafn heppin og ég. Ég hef einhvernvegin sjaldan leitt huganum að því hvernig hefði farið ef ég hefði ekki verið send í þessa aðgerð. Það var algjör tilviljun þannig séð því ég var búin að ganga á milli lækna sem sögðu mér annars vegar að anda í bréfpoka því ég væri bara ruglaður unglingur að feikaða eða að ég ætti bara að vera dugleg að synda. Sá sami læknir hafði látið mig vera í stoðbelti úr harðplasti 23 tíma á sólarhring og tvo hálftíma laus. Það var ekki huggulegt og enn síður þegar hann yppti öxlum og sagði að þetta hafði líklega ekki gert neitt gagn. Hefði líklega frekar viljað láta ljúga að mér og halda að þetta hafi þjónað tilgangi þennann 8 og 9 bekk sem ég þurfti að þrauka þetta. Hann sagði bara sorry ekkert meira fyrir þig og okkur að gera.

...Good memories:S

Sem betur fer lét ég ekki segjast og fór og fékk annað álit. Þá kom þetta allt í ljós. Hent á skurðborðið og negld saman eins og þyrluspaðinn í Einari Áskeli. Mikið er ég þakklát í dag. Fór bara eitthvað að velta þessu fyrir mér að þeta hefði getað farið allt á annann veg og ég í hjólastól með engin börn. Mikið er maður eitthvað fattlaus stundum á góðu hlutina.

En gott veður og ég ætla að halda áfram að þrífa. Næ bráðum í tannburstann til að skrúbba á milli skápa.
Farið varlega í umferðinni og sjáið nýju Michael Moore myndina og öðlist nýtt sjónarhorn á heilbrigðiskerfið okkar.

laugardagur, júlí 28, 2007

Jaaaæja


Kominn tími á blogg? Ég fékk skammir og tek það til greina. Ein og ein hræða enn að tékka svo það er eins gott að fullnægja bloggþörfum þeirra:P

Hvað get ég sagt...
Slit-tékk
Gyllinæð-tékk
Crocksskór-tékk
Háralitur sem loðir við allt nema hárið á mér-tékk...veggurinn er með fallegann háralit sem mig langaði í.

Á ég mér endurreisnarvon? Ég er allt það sem ég hef hæðst að í háa herrans, og þessu linnir ekki. Ég á eitt þrep eftir í kvennahlaupsbolinn en ég læt það nú vera. Held í restina af sæmdinni minni.

Þrátt fyrir óhugnalega upptalningu hér að ofan þá eru þetta búnar að vera yndislegar vikur að mestu. Barn og betri helmingur í fríi og ég fékk að hafa nóg fyrir stafni. Fórum í útilegu í húsi á hjólum, parkeruðum á Þingvöllum í rigningu. Það var huggulegt...þangað til batteríin í fartölvunum báðum kláruðust. Jebb við erum ekki upp á marga fiska í útivistinni en ég verð að segja ykkur að Gray´s anatomy eru skemmtilegir þættir.

Litla dnaið mitt er farið að spjalla við mig og er eins frábært og það gæti orðið, kannski þessvegna sem ég þrauka upptalningu númer 1 og 2 betur þar sem ég býst við að eiga annað eins í vændum. En frumburðurinn er frábær í alla staði.
Núna er að síga á seinasta hlutann á þessu ferli og ég er ansi ánægð bara með að vera með slit því þetta hélst inni allavega enn. Það er fram úr björtustu vonum. Það er allt búið að ganga eins og í sögu..þannig og ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Að væla yfir slitum er eitthvað sem væri kjánalegt þar sem dagar bikinis og magabola kvöddu á svipuðum tíma og Dr. Alban. Þannig að þetta skiptir ekki miklu. Ég hef líka verið einn furðulegur aðdáandi öra og finnst eitthvað heillandi við ör. Skemmtilegt að heyra líka allskonar sögur af allskonar örum. Mín eru samt að verða eins og skemmtileg skrappbók.

Fólk er byrjað að stoppa mig úti á götu og spyrja mig hvort ég sé búin að gleypa hval. Ég svara þessu yfirleitt á þann mátann að fólkið í Óla fjölskyldu fæðist flest með höfuð í yfirstærð og ég fái litlu um þetta ráðið. Þau eru bara svona. Rétt eins og gyðingar fengu stórt nef.
Ég semsagt nokkrum sentimetrum frá því að geta leigt mig út sem æfingabolta þar sem ég rúnast svo vel á öllum köntum að ég þarf ekki að nota fæturna eins og áður. "Lyfta og stíga" er úr sögunni, prikið sem rúllar mér af stað dugar fínt.
Ljósmóðirin horfði á mig um daginn og sagði "jæja elskuleg....finnst þér þú ekki hafa blómstrað svolítið síðustu vikur?"
Ég er búin að blása út og ekkert eins og nein blóm sem ég hef séð. Þetta var númer 2 í krúttskalanum þar sem hinn læknirinn minn notaði orðið bólstruð. Það er eitthvað sem ég kann alltaf vel að meta. En blómstra...ég veit ekki.
Hún er yndi og sagði mér varfærnislega að það þyrfti að senda mig í vaxtarsónar því höfuðlag föðurs dekkaði ekki sem útskýring á þessu flykki.
Ég fór og það er allt í lagi. Ég bíð bara spennt eftir að fá litla tröllið í hendurnar.

fimmtudagur, júní 28, 2007


Ég verð bara að deila því með þeim sem ekki vita. Ég fór í heimsókn til vinar míns fyrir um hálfu ári og sá þar fyndnustu þætti sem ég hef séð. Nighty night heita þeir og eru breskir. Svipaður húmor og í Little Britain en mun illkvittnislegri. Ég allavega veinaði þegar ég horfði á þetta og bið ykkur sem eruð jafn evil og bloggeigandinn ég að redda ykkur þessum þáttum.
http://www.bbc.co.uk/comedy/guide/articles/n/nightynight_999040106.shtml þetta á að vera linkurinn á þetta. Annars er ég líka búin að vera í little britain dvala og langt síðan ég horfði á þá síðast. Ég var svo heppin að ná í skottið á þættinum áðan og minna mig á að eyða meiri tíma í sjónvarpsgláp....eða þannig:S

Ég varð líka fyrir því óhappi áðan að lenda á Jay fituhaus Leno og sjá þar nokkur verstu moment spjallþáttana áðan. Þau voru fyrir ótrúlegri tilviljun öll stödd í þessum eina þætti. Þetta var eitthvað svona heimskuleg stunt hjá óþekktu fólki sem hefði nánast getað sagað af sér fótinn "on air" fyrir þessar eftirsóttu 15 sekundur af frægðinni. Þarna var einhver portúgalskur hobbiti í alltofstórum bol að gera eitthvað "reyniaðkveikjaekkiíbuxunummínum-stunt-á meðan ég reyni að setja flaming sykurpúða í skeið í munninum á mér" wtf? Ég sá bara þennann misheppnaða mann ná að kveikja í skónum sínum, næstum settinu hjá fituhausnum, brenna hendina á sér silent 3 stigabruna (passaði sig þó á því að kveinka sér ekki) og missa allt á gólfið tvisvar. Ég og gullmaðurinn sátum bæði veinandi og æjandi og reyndum að horfa á þetta með hálfklemmd augun af bjánagangi..
við komumst eiginlega ekki að því hvað átti að gerast þarna í endann eða út á hvað þetta gekk annað en að eymingjans maður gerði sig að fífli mð sykurpúða og eldspýtu.

Næsta á eftir kom rednekki með hart hár og gúmmíteygju langa sem vinur hans smellti á mallann á honum. Hann var samt held ég að reyna að koma frá sér þeirri gamansögu að hann hafi verið svo villtur eitt kvöldið að hann hafi bara smellt rakvél á hausinn og skrifað, "viltu giftast mér" og sýnt netkærustunni sinni á youtube. Rómansinn í háglansi. Þetta var semsagt önnur villtasta lífsreynslan hans á eftir gúmmíteygjustuntinu on air. Ég elska kanann.

Þriðja og toppurinn á tepartýinu hjá honum í þættinum (líklega gengið illa að fá seleb í þáttinn í kvöld) var svo ítalinn sem leit út eins og uppfinningamaðurinn í back to the future. bastarðurinn bróðir hans sem var dökkur en alveg eins.
Hann var svo hrikalega sterkur að hann braut kókoshnetur. Jay ákvað að sanna það fyrir áhorfendum að það væru engin brögð í tafli og maðurinn ætlaði að brjóta 20 hnetur á einu bretti...með berum höndum! úú þarna kemur eitthvað krassandi, hugsaði ég, en svo henti hann einni ofurhnetuni í gólfið og þá voru eftir 19 til að brjóta. Svo massað var þetta.
Litli ítalinn pústaði sig síðan upp með aðstoðarmanninum öskraði eitthvað óskiljanlegt á pizzeriamáli og hóf handa við að brjóta. hann braut eina ekki næstu ekki næstu og ekki næstu eina aðra og síðan var hann eins og hellisbúi á E pillu og barði allar aftur og aftur, nokkrar brotnuðu og þá var tíminn búinn. Meiriháttar talent.
Ahhh..you had to be there..

Vút

miðvikudagur, júní 13, 2007

Það líður langt á milli færlsna núna en það er bara þannig.
Það er fátt spennandi að gerast núna nema það að ÖLL fötin mín eru eins og það séu sniðin í xxs og því skondið að sjá mig á röltinu núna. Ef þið sjáið hormónabombu á vappi með gliðnaða sauma á rassi, rass að framan og uppúr þá endilega smellið á mig kveðju.

Ég var samt djörf og skellti mér í bíó með henni öskubusku vinkonu minni. Hún átti bágt með sig um tólf og var komin með nokkra feita marbletti af olnbogaskotum tíu mín. eftir að vagninn breyttist í graskerið.
Við ákváðum eftir mikinn valkvíða að fara á myndina Zodiac, myndin um fjöldamorðingjann. Það er alltaf eitthvað sem kveikir í mér við hrollvekjur og eitthvað svona ógeðslegt, þó þessi mynd sé svo langtfrá því að vera hryllari. Morð og eitthvað hryllilegt sem lætur mann missa úr svefn næstu viku er eitthvað sem ég borga mig hiklaust á. Þessi var hinsvegar voða ljúf miðað við margt annað. Mjöög skemmtilegur fyrri helmingur. Seinni....not so good. Held allavega að öskubuska hafi ekki verið sú eina hrjótandi í salnum. Af einhverjum ástæðum mæli ég samt með henni.

Eftir bíóferð og upplivelse síðustu daga þá er nýjasta uppgövun mín sú að að kaupa mér þvaglegg á Ebay. Ef þið sjáið einn slíkann endilega hendið til mín link á gripinn. Er komin með svo leið á því að pissa að það er ekki til lýsingarorð yfir það. Það er allavega 4 stigum yfir efstastigi.

Fjölskyldan áðurnefnda á baðinu er í lægð. Þau eru líklega enn syrgjandi undir baðinu en sem beeeetur fer þá eru þeir með afleysingar í sumar. Það er pólsk brún fjölskylda sem á líka jafnmarga fætur og the Silvanians, en eru með magnaðann hæfileika til að rúlla sér. Þeim fannst samt Ajaxið mitt ekki bragðgott og létu sig hverfa í bili aftur. Ég býst við því að vinir mínir undir baðinu séu að taka við nýjum umsóknum.

Bið að heilsa í bili.
Vala og minikepp